Back to results

Reykjavík University

Hvaða þættir hafa mest áhrif á viðskiptatryggð á fjarskiptamarkaði? : tillögur til umbóta fyrir Sýn

Abstract

dc:description.abstract

Markmið þessarar rannsóknar var að greina hvaða þættir hafa mest áhrif á viðskiptatryggð á íslenskum fjarskiptamarkaði, með sérstakri áherslu á þjónustu, ímynd, skynjað virði og verð. Jafnframt var leitast við að varpa ljósi á hvaða lærdóm fyrirtækið Sýn getur dregið af niðurstöðunum til að styrkja stöðu sína og bæta upplifun viðskiptavina. Rannsóknin byggir á fræðilegum grunni um neytendahegðun, viðskiptatryggð, skynjað virði og ánægju viðskiptavina, með áherslu á fjarskiptamarkaðinn. Beitt var megindlegri rannsóknaraðferð þar sem spurningakönnun var lögð fyrir neytendur á íslenskum fjarskiptamarkaði. Könnunin var opin á tímabilinu 31. mars til 19. apríl 2026 og tóku alls 104 einstaklingar þátt. Meginþemu rannsóknarinnar voru viðskiptatryggð, þjónusta, ímynd og skynjað virði. Auk lokaðra kvarðaspurninga voru opnar spurningar notaðar til að fá dýpri innsýn í upplifun og viðhorf þátttakenda til fjarskiptafyrirtækja á Íslandi. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að viðskiptatryggð á fjarskiptamarkaði mótast af samspili margra þátta fremur en einum afmörkuðum þætti, í samræmi við fræðilegan grunn rannsóknarinnar. Hringdu mældist hæst í viðskiptatryggð og skynjuðu virði, en Síminn hæst í þjónustu og ímynd. Sýn mældist lægst í öllum fjórum flokkum. Niðurstöðurnar benda til þess að góð þjónusta og sterk ímynd ein og sér séu ekki nægjanlegar til að skapa tryggð ef viðskiptavinir upplifa ekki nægilegt virði miðað við kostnað. Þá komu þægindi, áreiðanleiki og aukið virði í formi fríðinda og sjónvarps- og íþróttaefnis einnig fram sem mikilvægir þættir í mati viðskiptavina. Skiptikostnaður reyndist jafnframt vera þáttur sem heldur hluta viðskiptavina í viðskiptum óháð ánægju þeirra. Niðurstöðurnar í sér gagnlegar vísbendingar um þá þætti sem mætti skoða nánar til að styrkja stöðu Sýn, sérstaklega hvað varðar verðskynjun, einfaldleika þjónustu, tæknilega upplifun og umbun til núverandi viðskiptavina. Samþætting fjarskipta, fjölmiðla og afþreyingar gæti jafnframt skapað mikilvægt samkeppnisforskot til framtíðar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Bryndís Perla Garðarsdóttir 2003-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/53656
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/53656

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Bryndís Perla Garðarsdóttir 2003-. Hvaða þættir hafa mest áhrif á viðskiptatryggð á fjarskiptamarkaði? : tillögur til umbóta fyrir Sýn. 2026. https://hdl.handle.net/1946/53656