Reykjavík University
Nauðgun á stafrænu formi? : greining á dómi Hæstaréttar 31. janúar 2024 í máli nr. 31/2023
Abstract
dc:description.abstractÍ dómi Hæstaréttar 31. janúar 2024 í máli nr. 31/2023 reyndi á það álitaefni hvort það teldist nauðgun að fjarstaddur gerandi hafi fengið 13 og 14 ára stúlkur til að viðhafa kynferðislegar athafnir gagnvart sjálfum sér og hver annarri, taka athafnirnar upp á myndband og senda geranda. Ákært var fyrir nauðgun samkvæmt 194. gr. hgl. og kynferðisbrot gegn börnum yngri en 15 ára samkvæmt 1. mgr. 202. gr. hgl. Því leit úrlausnarefni dómsins að lagatúlkun gildandi ákvæða um kynferðisbrot og reyndi þannig á 1. mgr. 194. gr. hgl. með áður óþekktum hætti. Hæstiréttur taldi að í ljósi reglunnar um lögbundnar refsiheimildir veitti orðalag fyrrgreindra ákvæða um nauðgun ekki það svigrúm til túlkunar að fella mætti háttsemi ákærða undir hugtakið önnur kynferðismök og sakfelldi fyrir kynferðislega áreitni samkvæmt 2. mgr. 202. gr. hgl. Í ritgerðinni er þess freistað að leggja mat á hvort niðurstaðan samræmist fyrri skilgreiningum réttarins á hugtökunum nauðgun og kynferðisleg áreitni. Lögfræðilega sker dómurinn sig úr fyrri dómaframkvæmd og hefur að geyma nokkur stefnumarkandi og mikilvæg nýmæli um mörk stjórnar og stjórnleysis geranda gagnvart brotaþola m.t.t. tíma og fjarlægðar. Hefur dómurinn verið gagnrýndur bæði lagalega og pólitískt, líkt og ákvæði kynferðisbrotakafla hegningarlaga um nauðgun almennt. Verður því varpað fram sjónarmiðum um endurskilgreiningu nauðgunarhugtaksins til að endurspegla betur félagslegan veruleika. Í ritgerðinni er komist að þeirri niðurstöðu að gagnrýna megi lagatúlkun Hæstaréttar í málinu fyrir að girða fyrir mögulega þróun nauðgunarákvæðanna um refsiábyrgð, þar sem sú þróun sé í samræmi við kjarna brotsins og nokkuð fyrirsjáanleg. Hins vegar verður ekki hjá því litið að ákvæði kynferðisbrotakafla almennra hegningarlaga veiti börnum ekki fullnægjandi refsivernd þegar gerandi fær brotaþola til grófra kynferðislegra athafna gagnvart sjálfum sér eða með öðrum, sér í lagi þegar gerandi er fjarstaddur brotaþola en viðhefur háttsemina í gegnum netið.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Aníta Birna Berndsen 1998-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/53607
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/53607