Reykjavík University
Eru opinberir nýsköpunarstyrkir samfélagslega arðbærir á Íslandi? : áhrifamat styrkveitinga Tækniþróunarsjóðs á tímabilinu 2017–2023
Abstract
dc:description.abstractÞessi rannsókn metur hvort opinberir nýsköpunarstyrkir frá Tækniþróunarsjóði séu samfélagslega arðbærir á Íslandi. Notast er við panel-gögn frá 227 styrkþegafyrirtækjum sem fengu styrk á árunum 2017–2023, ásamt fjárhagsupplýsingum úr ársreikningum þeirra tvö ár fyrir og tvö ár eftir styrkveitingu. Áhrifin eru metin með aðhvarfsgreiningu á tvíundafastalíkani (e. two-way fixed effects, hér eftir TWFE) og leiðréttingu fyrir misleita tímadreifingu styrkveitinga (Sun og Abraham, 2021). Þrjár útkomubreytur eru greindar, hagnaður/tap, launagreiðslur og tekjuskattur. Niðurstöðurnar sýna engin sterk merki um marktæk fjárhagsleg áhrif styrkveitinga á tveggja ára . Hagnaðar- og tekjuskattsstuðlar eru ekki marktækir með neinum aðferðum og ekki traustir gegn aðferðum sem takmarka áhrif fráviks fyrirtækja. Stuðullinn á launum er viðkvæmur fyrir aðferðavali og tilgátan um samsíða þróun fyrir styrkveitinga stenst ekki, sem veikir orsakatúlkun. Helsta framlag rannsóknarinnar er aðferðafræðileg, hún sýnir að mismunandi útfærslur á panel-greiningu á íslenskum styrkgögnum með misleitri tímadreifingu geta gefið ólíkar niðurstöður sem og að lengri eftirfylgni og samanburðarhópar ómeðhöndlaðra fyrirtækja eru forsenda þess að hægt sé að svara spurningunni um samfélagslega arðsemi með vissu.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Authors dc:creator
-
- Daníel Johannessen 2004-
- Óliver Máni Leifsson 2004-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/53606
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/53606