Back to results

Reykjavík University

Gjaldþrot fyrirtækja innan fyrstu fimm starfsára á Íslandi : áhersla á innri orsakaþætti

Abstract

dc:description.abstract

Fjöldi nýrra fyrirtækja eru stofnuð á ári hverju en jafnframt fer stór hluti þeirra í gjaldþrot á fyrstu starfsárum sínum. Markmið þessarar rannsóknar er að greina hvaða innri þættir geta haft áhrif á gjaldþrot fyrirtækja innan fyrstu fimm starfsára og kanna hvort greina megi sameiginlegt mynstur á meðal þeirra. Notast var við megindlega rannsóknaraðferð þar sem fyrrum eigendur gjaldþrota fyrirtækja voru beðnir um að svara spurningakönnun. Við tölfræðilega greiningu gagnanna voru framkvæmd t-próf, kí-kvaðrat próf og Spearman fylgnipróf. Niðurstöður spurningakönnunarinnar voru bornar saman við niðurstöður sem fyrrum rannsóknir hafa sýnt fram á. Þrátt fyrir að tölfræðilega marktækar niðurstöður hafi aðeins fundist í tveimur af fjórtán tilvikum þá gefa niðurstöðurnar vísbendingar um þá þætti sem geta haft áhrif á gjaldþrot fyrirtækja. Niðurstöður benda til þess að gjaldþrot fyrirtækja sé ferli sem þróast yfir tíma frekar en skyndilegur atburður. Rannsóknin undirstrikar mikilvægi undirbúnings fyrir rekstur, góðrar fyrirtækjamenningar og leiðtogahæfni, reglulegs eftirlits, stöðugra viðbragða við rekstrarerfiðleikum ásamt fleiri þáttum til að draga úr líkum á gjaldþroti fyrirtækja. Lykilhugtök: Gjaldþrot fyrirtækja, innri orsakaþættir, fyrstu starfsár, rekstrarerfiðleikar

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Aníta Eik Jónsdóttir 2004-
  • Kolfinna Rut Ríkharðsdóttir 2004-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/53538
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/53538

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Aníta Eik Jónsdóttir 2004-; Kolfinna Rut Ríkharðsdóttir 2004-. Gjaldþrot fyrirtækja innan fyrstu fimm starfsára á Íslandi : áhersla á innri orsakaþætti. 2026. https://hdl.handle.net/1946/53538