Back to results

Reykjavík University

Styrktarsamningar í íslenskri knattspyrnu : Ávinningur og þróun samstarfssamninga milli fyrirtækja og knattspyrnufélaga

Abstract

dc:description.abstract

Þessi rannsókn fjallar um styrktarsamninga í íslenskri knattspyrnu og hvaða ávinning fyrirtæki og knattspyrnufélög telja sig fá af slíku samstarfi, auk þess hvernig þessir samningar hafa þróast á undanförnum árum. Ritgerðin hefst á umfjöllun um fræðilegan bakgrunn viðfangsefnisins, þar sem helstu hugtök og þróun styrktarsamninga eru skoðuð, auk þess sem litið er til alþjóðlegrar þróunar áður en sjónum er beint að íslenskum markaði og mikilvægi styrktartekna fyrir félög. Rannsóknin byggist á hálfopnum viðtölum við sex einstaklinga með fjölbreytta reynslu af styrktarsamningum ásamt greiningu á ársreikningum hjá knattspyrnufélögum. Viðtölin voru greind með þemagreiningu með því markmiði að draga fram helstu mynstur í viðtölum og reynslu viðmælenda. Niðurstöður sýna að fyrirtæki líta á styrktarsamninga sem fjölþætt tæki þar sem sýnileiki, ímynd og samfélagsleg ábyrgð eru meðal helstu ávinninga. Helstu ókostir eru að erfitt getur verið að mæla árangur samninganna, þar sem áhrif á ímynd og viðhorf neytenda eru að eðli sínu huglæg. Aukið áreiti og óvissa hafa einnig áhrif á ákvarðanatöku fyrirtækja. Þrátt fyrir það, leggja sum fyrirtæki áherslu á mælingar og nýta aðferðir til að meta sýnileika og bera hann saman við hefðbundnar auglýsingar. Fyrir knattspyrnufélög felst ávinningur fyrst og fremst í fjárhagslegum stuðningi sem er mikilvægur fyrir rekstur þeirra. Persónuleg tengsl og tengslanet skipta jafnframt lykilmáli, og samkeppni milli félaga um takmarkað fjármagn er mikil. Í heild sýna niðurstöður að styrktarsamningar hafa þróast í markvissara og nánara samstarf þar sem báðir aðilar njóta ávinnings. Þessi þróun birtist meðal annars í aukinni áherslu á langtímasambönd, skýrari markmið og virkari þátttöku beggja aðila í samstarfinu. Einnig benda niðurstöður til þess að vægi styrktarsamninga hafi aukist, bæði sem tekjulind fyrir knattspyrnufélög og sem markaðstæki fyrir fyrirtæki, sem undirstrikar mikilvægi þeirra fyrir báða aðila.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Brynjar Dagur Sighvatsson 2003-
  • Gylfi Már Harðarson 2003-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/53532
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/53532

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Brynjar Dagur Sighvatsson 2003-; Gylfi Már Harðarson 2003-. Styrktarsamningar í íslenskri knattspyrnu : Ávinningur og þróun samstarfssamninga milli fyrirtækja og knattspyrnufélaga. 2026. https://hdl.handle.net/1946/53532