Back to results

Reykjavík University

Samanburður lyfjaverðs á Norðurlöndunum : lokaverkefni unnið fyrir Veritas/Vistor

Abstract

dc:description.abstract

Á Íslandi gilda reglur um verðlagningu lyfja þar sem miðað er við lyfjaverð á hinum Norðurlöndunum. Því þurfa íslenskir lyfjainnflutningsaðilar að fylgjast með verðþróun og gera reglulegan verðsamanburð milli landa. Í dag er slíkt eftirlit handvirkt og er því tímafrekt, kostnaðarsamt og getur tafið komu nýrra lyfja á íslenskan markað. Því er þörf á lausn sem getur safnað, samræmt og birt lyfjaverð frá Norðurlöndunum. Markmið þessa verkefnis var að hanna og þróa slíka lausn fyrir einn stærsta lyfjainnflutningsaðila landsins, Veritas, og dótturfélag þess, Vistor. Í verkefninu var unnin notendagreining, kerfishönnun og að lokum þróað kerfi sem samanstendur af miðlægum gagnagrunni, bakenda og notendaviðmóti. Gögn eru sótt sjálfvirkt úr opinberum gagnagrunnum í þeim löndum þar sem þeir voru aðgengilegir, annars með vefskröpun af apótekssíðum. Þar sem lyfjaupplýsingar eru settar fram með ólíkum hætti milli landa var sérstök áhersla lögð á stöðlun gagna og pörun sambærilegra lyfja. Lyf voru pöruð með vörunúmerum, samsetningu eiginda lyfjanna og loks mállíkani ef fyrri aðferðir dugðu ekki. Kerfið gerir notendum kleift að leita í lyfjunum, skoða ítarupplýsingar þeirra, bera saman verð milli landa og fá innsýn í verðbreytingar og markaðstækifæri. Afurð verkefnisins, Lyfjavarðan, er komin í hendur notenda. Hún heldur utan um tæplega 30 þúsund einstök lyf frá Norðurlöndunum. Af þeim lyfjum sem Vistor flytur inn tókst að para um 86% við lyf frá öðrum löndum. Með því hefur verið lagður grunnur að lausn sem getur dregið úr handavinnu, aukið yfirsýn yfir lyfjamarkaðinn og stutt við reglulega verðvöktun.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Eyrún Embla Andradóttir 2001-
  • Eva Rut Ómarsdóttir 2002-
  • Þorbjörn Rami Aaro Jouhki 2002-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/53500
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/53500

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Eyrún Embla Andradóttir 2001-; Eva Rut Ómarsdóttir 2002-; Þorbjörn Rami Aaro Jouhki 2002-. Samanburður lyfjaverðs á Norðurlöndunum : lokaverkefni unnið fyrir Veritas/Vistor. 2026. https://hdl.handle.net/1946/53500