Abstract
dc:description.abstractÁ síðustu árum hefur þátttaka almennings í fjárfestingum aukist verulega, meðal annars vegna aukins aðgengis að stafrænum fjárfestingarleiðum. Í þessari rannsókn beitum við sjónum að því hvernig áhættusækni einstaklinga í fjárfestingum mótast af lýðfræðilegum og sálfræðilegum þáttum. Rannsókn þessi er byggð á blandaðri aðferðafræði þar sem búið var til spurningalista sem 105 einstaklingar svöruðu. Auk þess voru tekin viðtöl við tvo sérfræðinga úr fjármála- og nýsköpunarumhverfi. Framkvæmd var einföld dreifigreining (e. One-Way ANOVA) til að kanna hvort marktækur munur væri á áhættusækni milli ólíkra hópa. Þó að tölfræðileg marktækni hafi ekki náðst, benda niðurstöður til þess að ákveðin mynstur séu til staðar. Sjónarmið og reynsla viðmælenda veittu dýpri skilning á þeim þáttum sem liggja að baki hegðun einstaklinga þegar kemur að fjárfestingum og styrktu túlkun niðurstaðna. Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að margir þættir skipta máli þegar kemur að áhættutöku einstaklinga í fjárfestingum. Þessi innsýn getur nýst í stefnumótun og fjármálafræðslu til að bæta ákvarðanatöku fjárfesta. Lykilorð: Áhættusækni, áhættufælni, áhætta, fjárfestingar, fjárfestingarhegðun.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Authors dc:creator
-
- Arnar Eide Garðarsson 2001-
- Jón Örn Ingólfsson 2000-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/50697
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/50697