Abstract
dc:description.abstractLokaverkefni þetta felur í sér endurhönnun á fasteigninni Brekkuland 10. 270. Mosfellsbæ. Í lýsingu lokaverkefnis voru fyrirskipaðar kröfur að húsið skuli vera einbýlishús á tveimur hæðum með innbyggðri bílageymslu. Í húsinu mega vera tvær íbúðir. Þess er einnig krafist að grunnflötur skuli vera um 150 m2, neðri hæð skuli vera steypt og einangruð að utan, efri hæð skuli vera byggð úr timbri og útveggir einangraðir á milli stoða eða CLT einingar og klæddir loftræstri klæðningu. Þak form skuli vera valfrjálst en skuli vera loftað sperruþak. Hjúpur húss skal vera viðhaldslítið í a.m.k. 35 ár. Við val á kerfi til upphitunar er gerð krafa til skjótrar svörunar til hækkunar og lækkunar á hita í rýmum og hanna skal bæði ofnakerfi og gólfhitakerfi í húsið þó aðeins annað hvort kerfið í hvert rými og rökstyðja val á kerfi. Þá skulu hljóðvistarkröfur og gott inniloft tryggt. Fara skal eftir lögum um mannvirki nr. 160/2010 og byggingareglugerð nr. 112/2012. Teikningasett inniheldur: aðaluppdrætti, verkteikningar, burðavirkisuppdrætti og lagnauppdrætti. Skýrsla inniheldur: verklýsingar, kostnaðaráætlun, verkáætlun, burðarþolsútreikninga, varmatapsútreikninga, lagnaútreikninga, umsókn um byggingarleyfi, gátlista, og fundargerðir. Verkið er unnið með hliðsjón af byggingarreglugerð.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Authors dc:creator
-
- Björgólfur Th. Stefánsson 1982-
- Vignir Guðnason 2001-
- Þröstur Gísli Jónsson 1987-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/48951
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/48951