Abstract
dc:description.abstractÍ þessu verkefni er hannaður holutoppur fyrir sambyggðar djúpdælur, ESP (e. Electrical Submersile Pumps) í lághita borholur. Í upphafi er umfjöllun um jarðhita, öxuldjúpdælur, ESP, uppbyggingu borhola og umfjöllun um holutoppa fyrir ESP sem Veitur hafa notað fram að þessu. Því næst umfjöllun um efni og aðferðir um CDIO aðferðina og smábútaaðferðina. Næst er fjallað um hönnunarferlið og síðan farið yfir niðurstöður og lokaútfærslan kynnt sem og niðurstöður úr burðarþolsgreiningu. Að lokum er smíðaaðferðum lýst. Holutoppnum er smeygt upp á efsta dælurör, áður en það er sett niður í holufóðringu. Þegar næst efsta dælurör hefur verið sett í borholuna er háspennukapall frá dælu þræddur upp í gegnum holutoppinn. Eftir að búið er að slaka toppnum niður á yfirborðsfóðringu er þétt með dælurörinu og toppflangs komið fyrir áður en dælurörsmúffan sest endanlega á toppinn.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Almar Aðalsteinsson 2002-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/48891
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/48891