{"id":{"repo_id":"reykjavik","oai_identifier":"oai:skemman.is:1946/47681"},"canonical_url":"https://search.dev.ndltd.org/etd/reykjavik/oai:skemman.is:1946/47681","repository":{"repo_id":"reykjavik","name":"Reykjavík University","base_url":"https://skemman.is/oai/request"},"display":{"title":"Í ljósi fræða um afburðastjórnun : þróun og innleiðing stafrænna lausna á Landspítala","abstract":"Í þessari rannsókn eru til skoðunar vegferðir í tveimur stafrænum verkefnum á Landspítala, annars vegar verkefni við þróun og innleiðingu Landspítalaappsins og hins vegar innleiðingu á lyfjafyrirmælakerfi Cato og lokuðu lyfjaferli á krabbameinsdeild. Tilgangur með rannsókninni er að meta frammistöðu þessara verkefna út frá hugmyndafræði um afburðastjórnun. Eins og orðið gefur til kynna felst afburðastjórnun í því að ná framúrskarandi árangri í gegnum stjórnunaraðferðir. Umfjöllun um afburðastjórnun teygir sig inn á mörg svið stjórnunar, þar á meðal verkefnastjórnun. Samkvæmt módelinu tryggja afburðaverkefni hátt ánægjustig hinna ýmsu hagsmunaaðila. Eitt þeirra viðmiða sem afburðalíkön nota fyrir framúrskarandi árangur í verkefnum er ánægja starfsfólks. Afmörkun þessarar rannsóknar felst í að meta frammistöðu í verkefnunum eingöngu út frá ánægju hagsmunahópsins starfsfólk. Leitast er við að svara rannsóknarspurningunni: Hvernig getur Landspítalinn staðið að þróun og innleiðingu stafrænna lausna svo ferlið og lausnin skili starfsfólki ánægju og virði í anda afburðastjórnunar? Tekin voru viðtöl við átta starfsmenn Landspítala sem hafa innsýn í verkefnin sem til skoðunar eru. Í undirbúningi rannsóknarinnar og gagnaúrvinnslu var stuðst við afburðalíkanið IPMA Project Excellence Model (IPMA PEM). Líkanið var notað til að meta hversu vel stjórnunaraðferðir í verkefnunum fylgdu aðferðafræði módelsins og hver áhrifin væru á ánægju starfsfólks. Spítalinn leggur áherslu á stafræna framþróun, stöðugar umbætur og verkefnastjórnun. Áskoranir við þróun og innleiðingu í viðamiklum stafrænum verkefnum á Landspítala eru margvíslegar því spítalinn er einn stærsti vinnustaður landsins og býr við verulega flókið og umfangsmikið tækniumhverfi. Álag á starfsmenn spítalans er oft á tíðum mikið og starfsumhverfið krefjandi sem gerir starf verkefnastjóra í stafrænum umbótaverkefnum vandasamt. Skortur á tíma starfsfólks getur hindrað framgang verkefnanna og jafnframt hefur stjórnun í verkefnunum ýmist jákvæð eða neikvæð áhrif á álag og ánægju starfsfólks. Vonast er til þess að hægt verði að nýta niðurstöður rannsóknarinnar til að stuðla að aukinni ánægju starfsfólks í tengslum við þróun og innleiðingu stafrænna lausna á Landspítala. Niðurstöður rannsóknarinnar gefa til kynna að fylgni stjórnunaraðferða verkefnanna við aðferðafræði IPMA PEM haldist í hendur við ánægju starfsfólks. Efnisorð: verkefnastjórnun, afburðastjórnun, IPMA PEM, Landspítali","abstract_html":"Í þessari rannsókn eru til skoðunar vegferðir í tveimur stafrænum verkefnum á Landspítala, annars vegar verkefni við þróun og innleiðingu Landspítalaappsins og hins vegar innleiðingu á lyfjafyrirmælakerfi Cato og lokuðu lyfjaferli á krabbameinsdeild. Tilgangur með rannsókninni er að meta frammistöðu þessara verkefna út frá hugmyndafræði um afburðastjórnun. Eins og orðið gefur til kynna felst afburðastjórnun í því að ná framúrskarandi árangri í gegnum stjórnunaraðferðir. Umfjöllun um afburðastjórnun teygir sig inn á mörg svið stjórnunar, þar á meðal verkefnastjórnun. Samkvæmt módelinu tryggja afburðaverkefni hátt ánægjustig hinna ýmsu hagsmunaaðila. Eitt þeirra viðmiða sem afburðalíkön nota fyrir framúrskarandi árangur í verkefnum er ánægja starfsfólks. Afmörkun þessarar rannsóknar felst í að meta frammistöðu í verkefnunum eingöngu út frá ánægju hagsmunahópsins starfsfólk. Leitast er við að svara rannsóknarspurningunni: Hvernig getur Landspítalinn staðið að þróun og innleiðingu stafrænna lausna svo ferlið og lausnin skili starfsfólki ánægju og virði í anda afburðastjórnunar? Tekin voru viðtöl við átta starfsmenn Landspítala sem hafa innsýn í verkefnin sem til skoðunar eru. Í undirbúningi rannsóknarinnar og gagnaúrvinnslu var stuðst við afburðalíkanið IPMA Project Excellence Model (IPMA PEM). Líkanið var notað til að meta hversu vel stjórnunaraðferðir í verkefnunum fylgdu aðferðafræði módelsins og hver áhrifin væru á ánægju starfsfólks. Spítalinn leggur áherslu á stafræna framþróun, stöðugar umbætur og verkefnastjórnun. Áskoranir við þróun og innleiðingu í viðamiklum stafrænum verkefnum á Landspítala eru margvíslegar því spítalinn er einn stærsti vinnustaður landsins og býr við verulega flókið og umfangsmikið tækniumhverfi. Álag á starfsmenn spítalans er oft á tíðum mikið og starfsumhverfið krefjandi sem gerir starf verkefnastjóra í stafrænum umbótaverkefnum vandasamt. Skortur á tíma starfsfólks getur hindrað framgang verkefnanna og jafnframt hefur stjórnun í verkefnunum ýmist jákvæð eða neikvæð áhrif á álag og ánægju starfsfólks. Vonast er til þess að hægt verði að nýta niðurstöður rannsóknarinnar til að stuðla að aukinni ánægju starfsfólks í tengslum við þróun og innleiðingu stafrænna lausna á Landspítala. Niðurstöður rannsóknarinnar gefa til kynna að fylgni stjórnunaraðferða verkefnanna við aðferðafræði IPMA PEM haldist í hendur við ánægju starfsfólks. Efnisorð: verkefnastjórnun, afburðastjórnun, IPMA PEM, Landspítali","abstract_has_math":false,"creators":["Kristín Harðardóttir 1976-"],"institution":null,"degree_name":null,"degree_level":null,"degree_discipline":null,"degree_department":null,"school":null,"contributors":["Háskólinn í Reykjavík"],"advisors":[],"committee_chairs":[],"committee_members":[],"year":2024,"date_issued":"2024-06-12T11:04:50Z","date_published":"2024-06-12T11:04:50Z","updated_at":"2026-07-27T20:40:29Z","subjects":["Verkefnastjórnun","Meistaraprófsritgerðir","Stjórnunarhættir","Starfsánægja","Sjúkrahús","Master of project management"],"languages":["is"],"rights":[],"rights_urls":[],"identifier_entries":[]},"links":{"outbound_url":"http://hdl.handle.net/1946/47681","outbound_label":"Handle","outbound_source":"dc:identifier.uri"},"metadata_groups":[{"id":"people","label":"People","entries":[{"key":"dc:contributor","label":"Contributor","values":["Háskólinn í Reykjavík"]},{"key":"dc:creator","label":"Author","values":["Kristín Harðardóttir 1976-"]}]},{"id":"academic_context","label":"Academic Context","entries":[{"key":"dc:date.accessioned","label":"Dc Date Accessioned","values":["2024-06-12T11:04:50Z"]},{"key":"dc:date.available","label":"Dc Date Available","values":["2024-06-12T11:04:50Z"]},{"key":"dc:date.issued","label":"Date","values":["2024-06-12T11:04:50Z"]},{"key":"dc:type","label":"Dc Type","values":["Thesis"]}]},{"id":"subjects_keywords","label":"Subjects and Keywords","entries":[{"key":"dc:subject","label":"Dc Subject","values":["Verkefnastjórnun","Meistaraprófsritgerðir","Stjórnunarhættir","Starfsánægja","Sjúkrahús","Master of project management"]}]},{"id":"language_rights","label":"Language and Rights","entries":[{"key":"dc:language.iso","label":"Language (ISO)","values":["is"]}]},{"id":"identifiers","label":"Identifiers","entries":[{"key":"dc:identifier.uri","label":"Identifier URI","values":["http://hdl.handle.net/1946/47681"]}]},{"id":"additional","label":"Additional Metadata","entries":[{"key":"dc:description.abstract","label":"Abstract","values":["Í þessari rannsókn eru til skoðunar vegferðir í tveimur stafrænum verkefnum á Landspítala, annars vegar verkefni við þróun og innleiðingu Landspítalaappsins og hins vegar innleiðingu á lyfjafyrirmælakerfi Cato og lokuðu lyfjaferli á krabbameinsdeild. Tilgangur með rannsókninni er að meta frammistöðu þessara verkefna út frá hugmyndafræði um afburðastjórnun. Eins og orðið gefur til kynna felst afburðastjórnun í því að ná framúrskarandi árangri í gegnum stjórnunaraðferðir. Umfjöllun um afburðastjórnun teygir sig inn á mörg svið stjórnunar, þar á meðal verkefnastjórnun. Samkvæmt módelinu tryggja afburðaverkefni hátt ánægjustig hinna ýmsu hagsmunaaðila. Eitt þeirra viðmiða sem afburðalíkön nota fyrir framúrskarandi árangur í verkefnum er ánægja starfsfólks. Afmörkun þessarar rannsóknar felst í að meta frammistöðu í verkefnunum eingöngu út frá ánægju hagsmunahópsins starfsfólk. Leitast er við að svara rannsóknarspurningunni: Hvernig getur Landspítalinn staðið að þróun og innleiðingu stafrænna lausna svo ferlið og lausnin skili starfsfólki ánægju og virði í anda afburðastjórnunar? Tekin voru viðtöl við átta starfsmenn Landspítala sem hafa innsýn í verkefnin sem til skoðunar eru. Í undirbúningi rannsóknarinnar og gagnaúrvinnslu var stuðst við afburðalíkanið IPMA Project Excellence Model (IPMA PEM). Líkanið var notað til að meta hversu vel stjórnunaraðferðir í verkefnunum fylgdu aðferðafræði módelsins og hver áhrifin væru á ánægju starfsfólks. Spítalinn leggur áherslu á stafræna framþróun, stöðugar umbætur og verkefnastjórnun. Áskoranir við þróun og innleiðingu í viðamiklum stafrænum verkefnum á Landspítala eru margvíslegar því spítalinn er einn stærsti vinnustaður landsins og býr við verulega flókið og umfangsmikið tækniumhverfi. Álag á starfsmenn spítalans er oft á tíðum mikið og starfsumhverfið krefjandi sem gerir starf verkefnastjóra í stafrænum umbótaverkefnum vandasamt. Skortur á tíma starfsfólks getur hindrað framgang verkefnanna og jafnframt hefur stjórnun í verkefnunum ýmist jákvæð eða neikvæð áhrif á álag og ánægju starfsfólks. Vonast er til þess að hægt verði að nýta niðurstöður rannsóknarinnar til að stuðla að aukinni ánægju starfsfólks í tengslum við þróun og innleiðingu stafrænna lausna á Landspítala. Niðurstöður rannsóknarinnar gefa til kynna að fylgni stjórnunaraðferða verkefnanna við aðferðafræði IPMA PEM haldist í hendur við ánægju starfsfólks. Efnisorð: verkefnastjórnun, afburðastjórnun, IPMA PEM, Landspítali"]},{"key":"dc:title","label":"Title","values":["Í ljósi fræða um afburðastjórnun : þróun og innleiðing stafrænna lausna á Landspítala"]}]}],"canonical_facts":{"dc:contributor":["Háskólinn í Reykjavík"],"dc:creator":["Kristín Harðardóttir 1976-"],"dc:date.accessioned":["2024-06-12T11:04:50Z"],"dc:date.available":["2024-06-12T11:04:50Z"],"dc:date.issued":["2024-06-12T11:04:50Z"],"dc:description.abstract":["Í þessari rannsókn eru til skoðunar vegferðir í tveimur stafrænum verkefnum á Landspítala, annars vegar verkefni við þróun og innleiðingu Landspítalaappsins og hins vegar innleiðingu á lyfjafyrirmælakerfi Cato og lokuðu lyfjaferli á krabbameinsdeild. Tilgangur með rannsókninni er að meta frammistöðu þessara verkefna út frá hugmyndafræði um afburðastjórnun. Eins og orðið gefur til kynna felst afburðastjórnun í því að ná framúrskarandi árangri í gegnum stjórnunaraðferðir. Umfjöllun um afburðastjórnun teygir sig inn á mörg svið stjórnunar, þar á meðal verkefnastjórnun. Samkvæmt módelinu tryggja afburðaverkefni hátt ánægjustig hinna ýmsu hagsmunaaðila. Eitt þeirra viðmiða sem afburðalíkön nota fyrir framúrskarandi árangur í verkefnum er ánægja starfsfólks. Afmörkun þessarar rannsóknar felst í að meta frammistöðu í verkefnunum eingöngu út frá ánægju hagsmunahópsins starfsfólk. Leitast er við að svara rannsóknarspurningunni: Hvernig getur Landspítalinn staðið að þróun og innleiðingu stafrænna lausna svo ferlið og lausnin skili starfsfólki ánægju og virði í anda afburðastjórnunar? Tekin voru viðtöl við átta starfsmenn Landspítala sem hafa innsýn í verkefnin sem til skoðunar eru. Í undirbúningi rannsóknarinnar og gagnaúrvinnslu var stuðst við afburðalíkanið IPMA Project Excellence Model (IPMA PEM). Líkanið var notað til að meta hversu vel stjórnunaraðferðir í verkefnunum fylgdu aðferðafræði módelsins og hver áhrifin væru á ánægju starfsfólks. Spítalinn leggur áherslu á stafræna framþróun, stöðugar umbætur og verkefnastjórnun. Áskoranir við þróun og innleiðingu í viðamiklum stafrænum verkefnum á Landspítala eru margvíslegar því spítalinn er einn stærsti vinnustaður landsins og býr við verulega flókið og umfangsmikið tækniumhverfi. Álag á starfsmenn spítalans er oft á tíðum mikið og starfsumhverfið krefjandi sem gerir starf verkefnastjóra í stafrænum umbótaverkefnum vandasamt. Skortur á tíma starfsfólks getur hindrað framgang verkefnanna og jafnframt hefur stjórnun í verkefnunum ýmist jákvæð eða neikvæð áhrif á álag og ánægju starfsfólks. Vonast er til þess að hægt verði að nýta niðurstöður rannsóknarinnar til að stuðla að aukinni ánægju starfsfólks í tengslum við þróun og innleiðingu stafrænna lausna á Landspítala. Niðurstöður rannsóknarinnar gefa til kynna að fylgni stjórnunaraðferða verkefnanna við aðferðafræði IPMA PEM haldist í hendur við ánægju starfsfólks. Efnisorð: verkefnastjórnun, afburðastjórnun, IPMA PEM, Landspítali"],"dc:identifier.uri":["http://hdl.handle.net/1946/47681"],"dc:language.iso":["is"],"dc:subject":["Verkefnastjórnun","Meistaraprófsritgerðir","Stjórnunarhættir","Starfsánægja","Sjúkrahús","Master of project management"],"dc:title":["Í ljósi fræða um afburðastjórnun : þróun og innleiðing stafrænna lausna á Landspítala"],"dc:type":["Thesis"]},"updated_at":"2026-07-27T20:40:29Z"}