Back to results

Reykjavík University

9+ skimunarpróf á meistaraflokki karla ÍBV : er líkamlegur munur á styrk, liðleika og jafnvægi á karla liðum ÍBV í handbolta árið 2013 og 2023

Abstract

dc:description.abstract

Framkvæmt var skimunarprófið 9+ sem metur gæði hreyfingar og áætla líkamlega frammistöðueiginleika eins og styrk, stöðugleika og liðleika. Markmið rannsóknarinnar var að framkvæma líkamlegar mælingar á liðinu og skoða hvort munur væri á frammistöðu í skimunarprófum hjá handknattleiks leikmönnum í meistaraflokk karla hjá ÍBV á tíu ára millibili. Helstu breytingar á þessum tíma var að tekið var inn sérhæfð styrktarþjálfun en ekki eru sömu leikmenn sem tóku þátt að tveimur undanskildum. Samanburður var gerður á mælingum á 14 leikmönnum árið 2013 og 20 leikmönnum árið 2023. Mælingarnar voru því gerðar á tíu ára millibili. Höfundur sá um mælingar árið 2023 og Elís Þór Rafnsson sjúkraþjálfari sá um mælingar árið 2013. Mælingar sem voru framkvæmdar voru tíu mismunandi skimunarpróf sem skoða styrk, liðleika og jafnvægi sem voru síðan borin saman á milli ára. Niðurstöður sýndu fram á marktækan mun sem og veik tengsl á milli aldurs og frammistöðu í skimunarprófunum. Miðað við þessar niðurstöður má því álykta að ekki séu miklar breytingar á liðinu á milli áratugs en liðið var ágætlega statt í fyrri mælingum einnig.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Kristine Laufey Sæmundsdóttir 1993-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/44874
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/44874

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Kristine Laufey Sæmundsdóttir 1993-. 9+ skimunarpróf á meistaraflokki karla ÍBV : er líkamlegur munur á styrk, liðleika og jafnvægi á karla liðum ÍBV í handbolta árið 2013 og 2023. 2023. http://hdl.handle.net/1946/44874