Reykjavík University
Rangar sakargiftir, sbr. 148. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með áherslu á kynferðisbrotamál
Abstract
dc:description.abstractUm rangar sakargiftir er fjallað í XV. kafla almennra hegningarlaga. Markmið refsiákvæða kaflans er að koma í veg fyrir að dómstólar og önnur stjórnvöld sem útkljá réttarmálefni komist að rangri niðurstöðu vegna rangra skýrslna. Refsivert er að bera mann röngum sökum í því skyni að valda því að saklaus maður verði sakaður um eða dæmdur fyrir refsiverðan verknað, sbr. 148. gr. hgl. Kynferðisbrot hafa mikið verið í sviðsljósinu á undanförnum árum. Stór annmarki er á rannsóknum kynferðisbrotamála, en oft á tíðum er fátt um haldbær sönnunargögn og vitnisburður þolanda í slíkum málum er yfirleitt eina sönnunargagnið sem liggur fyrir. Meginviðfangsefni ritgerðarinnar er umfjöllun um rangar sakargiftir, sbr. 148. gr. hgl. með áherslu á kynferðisbrotamál. Í víðtækustu merkingu skiptist ritgerðin í tvo hluta, í fyrri hluta hennar er vikið að þróun 148. gr. hgl. en fyrstu hegningarlög Íslands tóku gildi árið 1869 og miklar breytingar hafa verið gerðar á þeim, með núgildandi lögum nr. 19/1940. Næst verður farið yfir skilyrði refsiábyrgðar, verknaðarlýsingu og fullframningarstig brotsins, sbr. 148. gr. hgl. Í síðari hluta ritgerðar mun höfundur snerta sérstaklega á kynferðisbrotum með áherslu á rangar sakargiftir. Í meginatriðum er vikið að þróun refsilöggjafar í kynferðisbrotum og mikilvægi samþykkis við atburðarás. Þá verða helstu sjónarmið dómara reifuð við sönnunarmat í slíkum málum og hvar refsimörk liggja í dómaframkvæmd.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Tinna Valgerður Gísladóttir 2000-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/44368
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/44368