Back to results

Reykjavík University

Áhrif verðbólguspá Seðlabanka Íslands á markaðsaðila

Abstract

dc:description.abstract

Seðlabanki Íslands hefur árum saman birt verðbólguspá bankans opinberlega en í slíkum spám getur þó verið undirliggjandi óvissa sem þjóðhagslíkön ná ekki utan um. Því var þetta verkefni unnið í þeim tilgangi að varpa ljósi á þau áhrif sem verðbólguspár Seðlabanka Íslands kunna að hafa á markaðsaðila. Framkvæmdar voru tvær greiningar á verðbólguspá Seðlabankans. Fyrst var skoðað einfalda yfirsýn á þá óvissu sem er til staðar í verðbólguspám þar sem notast var við ársfjórðungsleg gögn um verðbólguspá bankans á árunum 2013-2022. Síðan var framkvæmd aðhvarfsgreining sem er innblásin af rannsókn Lembroni o.fl. (2021), á breytingum í verðbólguálagi á skuldabréfamarkaði við útgáfu verðbólguspá Seðlabankans. Niðurstöður fyrri greiningar benda til þess að spá líkindabila fyrir verðbólgu þrjá og sex ársfjórðunga fram í tímann er að meðaltali næst raunverðbólgu en undir lok spátímabilsins er verðbólgu nánast undantekningarlaust vanspáð. Niðurstöður aðhvarfsgreiningar sýndu fram á það að óvissa í verðbólguspám hefur jákvæð áhrif á verðbólguálag en eftir því sem líkindabilin verða breiðari því minni verða þessi jákvæðu áhrif sem þau hafa á álagið. Væntingar markaðsaðila sem og greiningaraðila hafa einnig áhrif á verðbólguálagið og því hægt að draga þá ályktun að upplýsingaflæði bankans er að einhverju leyti að hreyfa við markaðnum hér á Íslandi.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Árdís Inga Þórðardóttir 2001-
  • Heiðrún Arna Ottesen Þóroddsdóttir 2001-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/44266
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/44266

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Árdís Inga Þórðardóttir 2001-; Heiðrún Arna Ottesen Þóroddsdóttir 2001-. Áhrif verðbólguspá Seðlabanka Íslands á markaðsaðila. 2023. http://hdl.handle.net/1946/44266