Back to results

Reykjavík University

Sjálfbærni meðalstórra byggingafyrirtækja á Íslandi

Abstract

dc:description.abstract

Umræðan um sjálfbærni hefur aukist í samfélaginu síðustu ár. Byggingaiðnaði fylgja neikvæð umhverfisáhrif og ber iðnaðurinn mikla ábyrgð á stórum hluta kolefnislosunar jarðar. Í þessari ritgerð verður fjallað um þau áhrif sem byggingafyrirtæki hafa á umhverfið og sérstök áhersla er lögð á sjálfbærni og hringrásarhagkerfið. Tilgangur rannsóknarinnar var að rannsaka stöðu sjálfbærnimála hjá meðalstórum byggingafyrirtækjum á Íslandi. Notast var við eigindlegar rannsóknaraðferðir í formi viðtala og aukarannsóknar (e. secondary research). Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að sjálfbærnimál hjá meðalstórum byggingafyrirtækjum eru ekki langt á veg komin hér á landi, fá fyrirtæki hafa sett sér stefnu í sjálfbærnimálum og það má rekja til þekkingarleysis og langs ferlis við að innleiða sjálfbæra starfshætti. Einnig er innleiðing hringrásarhagkerfisins ekki langt á veg komin innan iðnaðarins og helstu ástæður fyrir því eru hugmyndir um hversu dýr innleiðing getur verið, vöntun á fjárhagslegum hvata og þekkingarleysi innan iðnaðarins. Lykilorð: Sjálfbærni, hringrásarhagkerfið, umhverfismál, byggingaiðnaður.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Jóhanna Sól Erlendsdóttir 2001-
  • Sigrún Margrét Sigurðardóttir 2000-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/44265
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/44265

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Jóhanna Sól Erlendsdóttir 2001-; Sigrún Margrét Sigurðardóttir 2000-. Sjálfbærni meðalstórra byggingafyrirtækja á Íslandi. 2023. http://hdl.handle.net/1946/44265