Reykjavík University
Calculating text difficulty for text reading fluency for 1st to 5th grade levels
Abstract
dc:description.abstractLestur er ein mikilvægasta færni nemanda í skóla og samanstendur af nokkrum þáttum, meðal annars nákvæmni í lestri og sjálfvirkni. Lestrarpróf eru notuð til að meta og fylgjast með lesfærni og samanstendur prófið af texta sem nemandinn les innan ákveðins tíma. Til að hægt sé að fylgjast með lesfærni nemanda af nákvæmni, þarf textinn sem notast er við að vera jafn þungur innan árgangs og milli ára. Mismunandi jafnvægi texta getur gefið ranga mynd á lesfærni nemanda. Tilgangur rannsóknar var að athuga hvort lesfimi textar í 1. til 5. bekk sé jafn þungur innan bekkja og milli ára. Fyrirliggjandi gögn voru fengin hjá Menntamálastofnun sem samanstóðu af lesfimi textum frá 1. til 10. bekk og lesfimistigum frá 3.068 nemendum fæddum 2002 til 2007. Í rannsókninni var notast við tvær formúlur (Flesch-Kincaid og Powers-Sumner-Kearl) sem taka mið af samsetningu orða og eru notaðar til að áætla þyngd lesefnis. Einnig voru textarnir skipt niður í þrjá jafna búta innan árgangs, til að gefa betri mynd á þyngd texta innan árgangs. Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu að textanir frá 1. bekk til 5. bekk voru ekki jafn þungir, bæði innan árgangs og milli ára. Lykilorð: Lesfimipróf, lesfimi textar, textabútar, þyngd lesefnis.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Andri Einarsson 1999-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/42348
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/42348