Back to results

Reykjavík University

Samanburður á sjálfbærni og sjálfbærniskýrslum sjávarútvegsfyrirtækja

Abstract

dc:description.abstract

Krafan að fyrirtæki stundi sjálfbæran rekstur og vinni í sátt við umhverfið, samfélagið og lög hefur vaxið mikið síðastliðin ár. Þetta hefur sýnt að það er sífellt nauðsynlegra að innleiða samfélagslegábyrgð fyrirtækja CSR (e. Corporate Social Responsibility). Rannsóknir hafa verið að sýna það að færa sig yfir í hringrásahagkerfið er arðbærara og næsta skref í þróun fyrirtækja, m.a. vegna þess að hagsmunaaðilar bæði háðir og óháðir eru farnir krefjast þess. Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna eru notuð til þess að hjálpa við innleiðingu CSR og sem leiðarvísir og hafa Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi eða SFS innleitt sjö af þeim heimsmarkmiðum í þeirra samfélagsstefnu. Öll þau fyrirtæki sem skrifa undir þessa stefnu hafa þá kröfu að fylgja þessum markmiðum og hafa Brim hf., Eskja hf. og Vísir hf. gert það. Þetta verkefni hefur það markmið að kynnast þeirra samfélagsstefnu, bera þær saman og finna út árangur þeirra að fylgja stefnu SFS, heimsmarkmiðunum og mögulega komast að því hvort um grænþvott er að ræða. Heimasíður, samfélagsskýrslur, ársreikningar og heimildir voru notaðar við greiningar á þessari ritgerð. Óstöðluð viðtöl með eiginlegri nálgun var það sem þessi rannsókn byggir á við fulltrúa þjóðhagslega mikilvæga sjávarútvegsfyrirtækja og einnig efnisgreiningu. Það sem kom í ljós út frá niðurstöðum þessara rannsóknar að fyrirtækin sem skrifuðu undir Samfélagsstefnu SFS eru kominn mislangt. Þegar fyrirtækin skrifuðu undir árið 2020 voru sum fyrirtækjanna kominn eitthvað af stað og önnur ekki byrjuð. Innleiðing sjálfbærni í rekstur fyrirtækis gerist með litlum skrefum. Brim gætir mest að sjálfbærni en Vísir og Eskja eru að vinna í því að verða sjálfbær.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Ásgeir Valur Sigríðarson 1994-
  • Óliver Andri Gunnarsson 2000-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/41684
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/41684

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ásgeir Valur Sigríðarson 1994-; Óliver Andri Gunnarsson 2000-. Samanburður á sjálfbærni og sjálfbærniskýrslum sjávarútvegsfyrirtækja. 2022. http://hdl.handle.net/1946/41684