Back to results

Reykjavík University

Staða fjármálastofnana í sjálfbærri upplýsingagjöf : samanburður á bönkum á Íslandi og Norðurlöndunum

Abstract

dc:description.abstract

Samfélagsábyrgð og sjálfbærni hefur þróast hratt síðustu ár þegar kemur að fjármálamörkuðum. Þau áhrif sem fjármálastofnanir hafa á umhverfið voru lengi ekki talin mikil en þróun síðustu ár hefur sýnt að vegna sérstöðu sinnar í hagkerfinu eru fjármálastofnanir í lykilstöðu til að stuðla að sjálfbærum málefnum og samfélagslegri ábyrgð. Tilkoma Parísarsáttmálans og Heimsmarkmiða Sameinuðu Þjóðanna hefur leitt til stofnunar fjölda samtaka sem vinna að sjálfbærni innan fjármálamarkaðarins ásamt stöðlum til upplýsingagjafa og nýrri aðferðafræði. Hefur þróunin verið hröð og mikil en á sama tíma er lítið eftirlit og samræmi í aðgerðum og upplýsingagjöf, sem stefnt er að koma í lag með útgáfu nýrra reglugerða sem snúa að upplýsingagjöf. Markmið þessarar rannsóknar er því að fá yfirsýn yfir stöðu íslenskra banka í dag þegar kemur að sjálfbærri upplýsingagjöf. Ásamt því verður skoðað hvernig staða íslensku bankana er í samanburð við leiðandi banka á Norðurlöndunum á sviði sjálfbærni. Byggir rannsóknin á fræðilegri úttekt á grundvallarhugtökum ásamt margþátta rannsókn þar sem Arion Banki, Íslandsbanki, Kvika og Landsbankinn, ásamt Danske bank, Nordea og SEB eru skoðaðir. Stuðst er við útgefið efni frá bönkunum á heimasíðum þeirra ásamt árs- og sjálfbærniskýrslum. Niðurstöður benda til þess að núverandi lagarammi um upplýsingagjöf sé almennt ekki skilvirkur þegar kemur að framsetningu og innihalds upplýsinga, sem fjármálastofnanir setja fram og veitir ekki nógu mikið gagnsæi og samræmi fyirir hagsmunaaðila. Þættir sem bankar leggja mikla áherslu á í upplýsingagjöf sinni eru loftslagstengdar áhættur, áhrifagreininar og mælingar á kolefnsspori lánasafns. Þá sýnir rannsóknin einnig að þrátt fyrir lengri reynslu bankanna á Norðurlöndunum þá hafa þeir íslensku verið í hraðri sókn síðustu ár og tekið miklum framförum. Lykilorð: Sjálfbærni, fjármálastofnanir, upplýsingagjöf, umhverfi, gagnsæi.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Jóna Rut Vignir 1998-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/41677
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/41677

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Jóna Rut Vignir 1998-. Staða fjármálastofnana í sjálfbærri upplýsingagjöf : samanburður á bönkum á Íslandi og Norðurlöndunum. 2022. http://hdl.handle.net/1946/41677