Reykjavík University
Áhrif sjálfbærnistefnu fyrirtækja í fataiðnaði á val neytenda á vörumerki
Abstract
dc:description.abstractVitundarvakning hefur átt sér stað á síðustu árum um mikilvægi þess að fyrirtæki leggi áherslu á sjálfbærnistefnu. Umræðan um sjálfbærni hefur aldrei verið háværari en undanfarin ár, sérstaklega vegna möguleika hennar til að hafa áhrif á viðhorf og kauphegðun neytenda. Viðfangsefni rannsóknarinnar var að kanna áhrif sjálfbærnistefnu fyrirtækja í fataiðnaði á val neytenda á vörumerki. Megindleg rannsókn í formi vefkönnunar var framkvæmd og hún birt á samfélagsmiðlinum Facebook, í heildina voru 300 manns sem tóku þátt í vefkönnuninni. Einföld lýsandi tölfræði og „kí-kvaðrat” tölfræðipróf voru framkvæmd. Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að áhrif sjálfbærnistefnu hefur ennþá ekki nægileg áhrif á val neytenda á vörumerki. Það getur verið meðal annars vegna þekkingarleysis neytenda á sjálfbærni. Þá leiddu niðurstöður ennfremur í ljós að þrátt fyrir þekkingarleysi neytenda er þekking þeirra að aukast með hverju árinu sem líður og mun hún vonandi koma til með að hafa áhrif á val neytenda á vörumerki í náinni framtíð. Lykilorð: sjálfbærni, sjálfbær þróun, fataiðnaður, hringlaga hagkerfi, gagnsæi, hagsmunaaðilar, neytendahegðun
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Authors dc:creator
-
- Jóhanna Lind Kristinsdóttir 2000-
- Katrín Ása Kristinsdóttir 2000-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/41676
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/41676