Reykjavík University
Taka hlutabréfa til viðskipta á skipulegan markað : skref sem stjórnendur félaga þurfa að taka til að skrá hlutabréf félags á skipulegan markað samkvæmt lögum um markaði fyrir fjármálagerninga nr. 115/2021 og reglubók Nasdaq
Abstract
dc:description.abstractÞann 1. september 2021 tóku ný lög gildi, lög um markaði fyrir fjármálagerninga nr. 115/2021. Með lögunum eru innleidd ákvæði tilskipunar Evrópusambandsins (MiFIDII), reglugerðar Evrópusambandsins (MiFIR) og framseldra reglugerða. Hinn 1. febrúar 2021 gaf National Association of Securities Dealers Automated Quotations (Nasdaq) út Norræna reglubók fyrir útgefendur hlutabréfa á aðalmarkaði. Innihalda ofangreind regluverk reglur um töku hlutabréfa til viðskipta á skipulegan markað. Til að svara rannsóknarspurningunni er byrjað á því að fjalla um þróun löggjafar. Markmið kaflans er að skoða hvernig löggjöfin hefur þróast í gegnum tíðina þar sem það skiptir miklu varðandi lögskýringar á núgildandi regluverki. Annar kafli fjallar um hugtakið verðbréf og tegundir viðskiptavettvanga. Í þriðja kafla er fjallað um tilgang töku verðbréfa til viðskipta, ákvarðanatöku varðandi skráningu og um þá kosti og galla sem fylgja skráningunni. Í fjórða kafla sem er umfangsmesti kafli ritgerðarinnar er fjallað um reglurnar, skilyrðin og skrefin sem félög þurfa að uppfylla til að taka hlutabréf félags til viðskipta. Í fimmta kafla ritgerðarinnar er fjallað um útboð og lýsingar. Markmið kaflans er að sýna hve mikilvæg upplýsingagjöfin er þegar hlutabréf eru boðin út í almennu útboði og mikilvægi þess að tryggja fjárfestaverndina. Í sjötta og síðasta kafla kafla ritgerðarinnar er rannsóknarspurningu höfundar svarað. Til þess að draga skrefin saman á einfaldan máta eru þau eftirfarandi; Fyrsta skrefið er að fá fund með Kauphöllinni og sækja um að hefja ferli vegna töku hlutabréfa til viðskipta. Því næst er fyrsti uppdráttur lýsingar send til Fjármálaeftirlitsins sem sendir endurgjöf með athugasemdum. Lokaútgáfa lýsingar er því næst send til Fjármála-eftirlitsins til staðfestingar. Að lokum er lýsingin birt almenningi, útboð hefst og að því loknu, eru hlutabréf útgefanda tekin til viðskipta. Á meðan þessu stendur, eru ýmis atriði sem vert er að hafa í huga, skilyrði sem þarf að uppfylla og upplýsinga sem þarf að afla.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Karen Lárusdóttir 1999-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/41487
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/41487