Back to results

Reykjavík University

Coercion in Icelandic nursing homes : a correlational study of physical restraint use

Abstract

dc:description.abstract

Notkun líkamsfjötra á hjúkrunarheimilum er umdeild og flestir rannsóknarmenn hafa komist að þeirri niðurstöðu að best væri að draga úr notkun þeirra eða stöðva algjörlega. Samkvæmt fyrri rannsóknum er notkun fjötra óalgeng á Íslandi í samanburði við önnur lönd (Ljunggren et al., 1997). Notkun þeirra jókst úr 3% árið 1999 í 12% árið 2009 (Hjaltadóttir, 2012). Í núverandi rannsókn eru gögn úr Resident Assessment Instrument Minimum Data Set (interRAI-MDS 2.0) notuð til að bera kennsl á áhrifaþætti fjötranotkunar. Svipaðar rannsóknir hafa verið gerðar í öðrum löndum með mismunandi niðurstöðum og mögulegt að menning og venjur hvers staðar hafi áhrif. Sú spurningin sem rannsókninni var ætlað að svara er eftirfarandi: „hvaða þættir tengjast notkun líkamsfjötra á íslenskum hjúkrunarheimilum?”. Markmiðið er að útbúa grunn fyrir möguleg inngrip til að minnka notkun fjötra, ef og þar sem þörf þykir. Rannsóknin var afturvirk og lýsandi og úrtakið innihélt alla íbúa hjúkrunarheimil á Íslandi árið 2018. Þátttakendur voru 3270 talsins, 63,1% þeirra voru kvenkyns og aldur spannaði 29-109 ár (M = 84; SE = 9). Mann-Whitney U samanburður og kíkvaðratpróf voru notuð til að meta fylgni. Gögnin sýndu að notkun fjötra hefur minnkað frá árinu 2009 niður í 4.3%. Borin voru kennsl á nokkra þætti sem tengjast fjötranotkun og voru niðurstöður í þónokkru samræmi við fyrri rannsóknir. Þessir þættir voru meðal annars líkamleg og hugræn geta, þunglyndiseinkenni, notkun geðlyfja, hegðunarvandi og legusár. Rannsaka þarf frekar aðrar gerðir fjötra og þvingana sem notaðar eru á íslenskum hjúkrunarheimilum en interRAIMDS 2.0 gagnasöfnunin nær ekki til. Lykilorð: líkamsfjötrar, hjúkrunarheimili, siðfræði hjúkrunar, interRAI-MDS 2.0

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sigríður Ósk Ólafsdóttir 1989-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 8

Rights

Language dc:language.iso
en

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/39335
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/39335

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sigríður Ósk Ólafsdóttir 1989-. Coercion in Icelandic nursing homes : a correlational study of physical restraint use. 2021. http://hdl.handle.net/1946/39335