Reykjavík University
GPS mælingar á knattspyrnumönnum í efstu deild karla á Íslandi : samanburður á leikmönnum sex liða
Abstract
dc:description.abstractMarkmið ritgerðarinnar var að rannsaka hvort líkamlegt þrek knattspyrnumanna hefði áhrif á lokastöðu sex liði í efstu deild karla á Íslandi. Einnig var markmiðið að kanna hvort líkamlegt þrek væri mismunandi eftir því hvaða leikstöðu þátttakendur spila. Rannsóknin var megindleg og þátttakendur voru 108 leikmenn í sex liðum í Pepsi Max deild karla árið 2020. Þrjú liðanna enduðu í neðri hluta deildarinnar og þrjú í þeim efri. Gögnum var safnað með GPS vestum sem leikmenn klæddust í leikjum. Frammistaða þátttakenda var flokkuð í heildarvegalengd, hlaup á hárri ákefð, spretti og spretti á hárri ákefð. Helstu niðurstöður voru þær að þátttakendur sem léku með liðum í neðri hluta deildarinnar standa sig betur í öllum mælingum sem framkvæmdar voru, nema heildarvegalengd spretta samanborið við liðin í efri hlutanum. Þó var aðeins marktækur munur á milli hópanna tveggja í heildarvegalengd hlaupinni í leik. Munur er á hlaupatölum leikmanna eftir leikstöðum en kantmenn skoruðu hæst í öllum mælingum sem rannsakaðar voru og miðverðir hlupu minnst þátttakenda í öllum mælingum. Niðurstöður gefa til kynna að munur er á frammistöðu eftir því hvaða leikstöðu leikmenn leika og hvar liðin sex enduðu í deildinni en þó eru ekki tengsl á milli aukinna hlaupa og betri lokastöðu í deildinni.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Authors dc:creator
-
- Bjarni Heimir Kristinsson 1994-
- Sindri Þór Þorgeirsson 1987-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/39272
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/39272