Back to results

Reykjavík University

Þekking þjálfara á einkennum heilahristings og fyrstu viðbrögðum í kjölfar heilahristings

Abstract

dc:description.abstract

Markmið rannsóknarinnar voru að kanna þekkingu handbolta-, körfubolta- og knattspyrnuþjálfara á Íslandi á einkennum heilahristings og fyrstu viðbrögðum við grun um heilahristing. Að auki var leitast við að kanna hvernig leiðbeiningum er fylgt eftir frá sérsamböndunum sem þjálfararnir starfa undir. Notast var við megindlega rannsóknaraðferð við gerð þessarar rannsóknar. Þátttakendur voru þjálfarar sem störfuðu annað hvort undir Knattspyrnusambandi Íslands (KSÍ), Körfuknattleikssambandi Íslands (KKÍ) eða Handboltasambandi Íslands (HSÍ). Niðurstöðurnar leiddu í ljós að þekking þjálfara á einkennum heilahristings var almennt góð. Hins vegar var skortur á þekkingu varðandi fyrstu viðbrögð við grun um heilahristing. Næstum helmingur þátttakenda vissi ekki hvort að félagið þeirra hafði sérstakar reglur varðandi heilahristinga. Því er ljóst að margt er ábótavant varðandi fræðslu sérsambandanna og þekkingu þjálfara á fyrstu viðbrögðum við grun um heilahristing.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Kristján Valur Jóhannsson 1993-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/38834
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/38834

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Kristján Valur Jóhannsson 1993-. Þekking þjálfara á einkennum heilahristings og fyrstu viðbrögðum í kjölfar heilahristings. 2021. http://hdl.handle.net/1946/38834