Back to results

Reykjavík University

Áhrif áhrifavalda á kauphegðun neytenda í gegnum Instagram

Abstract

dc:description.abstract

Tilgangur þessarar rannsóknar er að kanna áhrif áhrifavalda og auglýsinga þeirra á kauphegðun neytenda í gegnum samfélagsmiðilinn Instagram. Notkun samfélagsmiðla hefur aukist mikið undanfarin ár og nýta mörg íslensk fyrirtæki sér samfélagsmiðla þegar kemur að markaðssetningu. Þá er afar vinsælt nú til dags að fyrirtæki nýti sér áhrif og orðspor áhrifavalda í markaðssetningu á samfélagsmiðlum til að auka vörumerkjavitund. Framkvæmd var rannsókn þar sem spurningakönnun var lögð fyrir og birt á samfélagsmiðlinum Facebook. Við gagnasöfnun var stuðst við sjálfvalið úrtak og fengust svör frá samtals 306 þátttakendum. Markmið rannsóknarinnar var fyrst og fremst að kanna hvort áhrifavaldar hafi áhrif á kauphegðun neytenda með auglýsingum í gegnum Instagram. Með spurningakönnuninni var einnig könnuð notkun þátttakenda á Instagram, hvert almennt viðhorf þeirra sé til auglýsinga áhrifavalda á miðlinum, ásamt því að kanna hvort þátttakendur hafi keypt vöru eða þjónustu eftir að hafa séð áhrifavald auglýsa hana á Instagram. Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að áhrifavaldar hafa jákvæð áhrif á kauphegðun neytenda með auglýsingum í gegnum samfélagsmiðilinn Instagram. Einnig leiddu niðurstöður í ljós að viðhorf neytenda til auglýsinga áhrifavalda á Instagram er mjög misjafnt. Jafnt hlutfall er á milli jákvæðs og neikvæðs viðhorfs neytenda. Lykilorð: Markaðssetning, stafræn markaðssetning, auglýsingar, umtal, samfélagsmiðlar, Instagram, áhrifavaldar, duldar auglýsingar, kauphegðun neytenda, kaupákvörðunarferli neytenda, áhrifaþættir kauphegðunar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Halla Vigdís Hálfdánardóttir 1999-
  • Kolbrún Eik Óskarsdóttir 1998-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/38787
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/38787

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Halla Vigdís Hálfdánardóttir 1999-; Kolbrún Eik Óskarsdóttir 1998-. Áhrif áhrifavalda á kauphegðun neytenda í gegnum Instagram. 2021. http://hdl.handle.net/1946/38787