Back to results

Reykjavík University

Eldsvoði : beiting ákvæðis 164. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940

Abstract

dc:description.abstract

Ritgerð þessi ber heitið: Eldsvoði, beiting ákvæðis 164. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Markmið ritgerðarinnar er að draga saman heildstæða umfjöllun um ákvæði 164. gr. almennra hegningarlaga sem fjallar um brennu, eldsvoða og almannahættu. Ákvæðið hefur staðið óbreytt frá setningu laganna og lítið hefur verið fjallað um það af fræðimönnum. Þegar brot gegn ákvæði 164. gr. alm. hgl. eru fullframin er um hættubrot að ræða og er því ekki lögð áhersla á sjálfan verknaðinn né afleiðingar hans, heldur er það hættueðli brennubrota sem leiðir til þess að um refsivert brot sé að ræða. Kannaðir voru dómar Hæstaréttar frá árinu 1940 til ársins 2020, en á því 80 ára tímabili voru téðir 21 dómar í Hæstarétti sem reyndu á ákvæði 164. gr. alm. hgl., þar af var sakfellt fyrir brot gegn 164. gr. í 17 þeirra. Rannsakað var til hvaða atriða dómstólar líta við refsimat brennubrota og hvað þarf til að um almannahættu sé að ræða í skilningi ákvæðis 164. gr. Af könnun höfundar má ráða að dómstólar líti aðallega til þess hvort fólki hafi verið stefnt í bersýnilegan lífsháska eða hvort augljós hætta hafi verið á yfirgripsmikilli eyðingu á eignum annarra manna við mat á almannhættu. Það er mat höfundar að almenn sátt ríki um ákvæði 164. gr. alm. hgl. og að ekki þykir brýn þörf á breytingum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Gabríela Ósk Vignisdóttir 1998-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/38610
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/38610

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Gabríela Ósk Vignisdóttir 1998-. Eldsvoði : beiting ákvæðis 164. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. 2021. http://hdl.handle.net/1946/38610