Abstract
dc:description.abstractRitgerð þessi ber heitið: Ákvörðun erfðafjárskatts. Umfjöllunarefninu er ætlað að gera lesendum kleift að sjá hvernig erfðafjárskattur er ákvarðaður og hvað ber að hafa í huga þegar erfingjar standa frammi fyrir greiðslu erfðafjárskatts. Viðfangsefni ritgerðarinnar er að gera grein fyrir þróun erfðafjárskattslaga í gegnum áranna rás, hvaða reglur gilda við útreikning skattsins og gera grein fyrir ákveðnum ágreiningi er getur myndast við ákvörðun erfðafjárskatts, áhersla er því lögð á úrskurði yfirskattanefndar. Höfundur nálgast viðfangsefnið með þeim hætti að skipta umfjöllun í níu kafla. Í upphafi ritgerðarinnar verður fjallað um sögu og breytingu á lögum um erfðafjárskatt. Því næst er fjallað um núgildandi lög um erfðafjárskatt nr. 14/2004 og skattskylda aðila. Í kjölfarið verður fjallað um skiptingu dánarbús og til hvaða reglna ber þar að líta. Þá er einnig gerð grein fyrir erfðafjárskatti af fyrirframgreiddum arfi og skattlagningu gjafa. Rakið er hvaða reglur gilda um erfðafjárskatt í framkvæmd og um þær kæruheimildir til yfirskattanefndar sem kveðið er á um í erfðafjárskattslögum. Fjallað verður um þær afleiðingar er geta átt sér stað ef brotið er gegn lögum um erfðafjárskatt. Litið verður til tvísköttunarsamnings sem íslenska ríkið gerði við Norðurlöndin til að komast hjá tvísköttun arfs og gjafafjár. Að lokum verður litið til hvernig erfðafjárskatti er háttað á Norðurlöndum. Það sem lestur ritgerðar þessarar mun leiða í ljós er að erfðafjárskattslög hafa tekið miklum breytingum síðan þau voru fyrst lögleidd, einnig að erfðafjárskattur er flókinn í umsýslu og þá sé mikilvægt að hafa í huga núgildandi erfðafjárskattslög. Áfram munu vera skiptar skoðanir milli manna um ákvörðun erfðafjárskatts og má álykta að núgildandi erfðafjárskattslög munu breytast með tímanna rás.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Edda Marín Ólafsdóttir 1998-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/38599
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/38599