Back to results

Reykjavík University

Hagkvæmnisgreining á flutningaleiðum Samskip

Abstract

dc:description.abstract

Á íslenskum markaði fyrir útflutning ríkir fákeppni og eru þrjú fyrirtæki ráðandi, Eimskip, Samskip og Smyril Line Cargo. Eimskip og Samskip byggja rekstur sinn á flutningum gáma (e. containers) en Smyril Line Cargo flytja vagna (e. trailers). Útflutningsleiðir Eimskips og Samskipa eru áþekkar hvað varðar tíðni og þjónustu í flutningum. Markmið þessarar rannsóknar er að framkvæma kostnaðargreiningu á völdum flutningaleiðum Samskip og bera saman við nýja einfaldari flutningaleið sem höfundar leggja til og meta þannig mögulegan ábata þess að einfalda núverandi flutningakerfi. Við kostnaðargreininguna var stuðst við ítarlegt kostnaðarmódel (Stopford, 2009) sem skiptir kostnaði flutningafyrirtækja í fimm kostnaðarliði: rekstrarkostnað, ferðakostnað, fjármagnskostnað, reglubundinn viðhaldskostnað og meðhöndlunarkostnað farms. Gagna við greininguna var aflað með viðtölum og greiningu fyrri rannsókna og heimildaöflunnar. Kostnaðargreiningin leiddi í ljós að hægt er að draga úr flutningskostnaði á 20 feta gám um allt að 29,6%, eða úr 42.437 krónum í 32.735 krónur. Með nýrri einfaldari flutningaleið var einnig hægt að fjölga túrum (e. round trip) um 50% á ári vegna styttingar á túrum. Miðað við niðurstöður greiningarinnar má ætla að hægt sé að hagræða og fjölga ferðum með einfaldara flutningamódeli.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Bjarki Snær Jónsson 1995-
  • Tryggvi Snær Guðmundsson 1995-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/36282
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/36282

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Bjarki Snær Jónsson 1995-; Tryggvi Snær Guðmundsson 1995-. Hagkvæmnisgreining á flutningaleiðum Samskip. 2020. http://hdl.handle.net/1946/36282