Back to results

Reykjavík University

Hvers konar auglýsingaefni hrífur notendur á Facebook og Instagram?

Abstract

dc:description.abstract

Vinsældir þess að notast við markaðssetningu á samfélagsmiðlum hafa aukist mikið á síðustu árum og þurfa því fyrirtæki að huga vel að efni sem þau birta þar. Vanda þarf til verka þegar kemur að efnissköpun fyrir samfélagsmiðla. Mikilvægt er að fyrirtæki skoði hvers konar auglýsingaefni hrífur notendur og nær fram sem mestri svörun. Viðfangsefni þessarar ritgerðar er efnissköpun fyrirtækja á samfélagsmiðlum með áherslu á Facebook og Instagram sem eru með stærstu og vinsælustu samfélagsmiðlum í heimi. Framkvæmdar voru tvær rannsóknir, annars vegar spurningakönnun sem lögð var fyrir notendur Facebook og Instagram og hins vegar A/B prófanir á auglýsingum. Auglýsingarnar voru birtar á Facebook og Instagram síðu Hrím Hönnunarhúss og skoðað var hvort vörumyndir í mismunandi umhverfi veki upp misjafna svörun notenda. Auglýstar voru myndir af vörum með hvítum bakgrunni og í raunumhverfi með og án mannlegs þáttar. Tilgangur rannsóknarinnar var því að skoða hvort myndir sem notaðar eru til markaðssetningar á Facebook og Instagram veki upp mismunandi svörun eftir því umhverfi sem þær eru teknar í. Niðurstöður sýndu sterkar vísbendingar um að notendur kjósi almennt vörumyndir í raunumhverfi frekar en með hvítum bakgrunni og mannlegur þáttur hafði ekki afgerandi áhrif þegar litið var á heildarniðurstöður.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Katrín Lára Garðarsdóttir 1996-
  • Lára Borg Lárusdóttir 1996-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/36129
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/36129

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Katrín Lára Garðarsdóttir 1996-; Lára Borg Lárusdóttir 1996-. Hvers konar auglýsingaefni hrífur notendur á Facebook og Instagram?. 2020. http://hdl.handle.net/1946/36129