Back to results

Reykjavík University

Breytingar og nýjungar í viðskiptum og umgjörð innherja með tilkomu MAR

Abstract

dc:description.abstract

Þann 12. júní 2014 birtist í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins reglugerð um markaðssvik nr. 596/2014 (MAR). Reglugerðin tók formlega gildi 3. júlí 2016 í aðildarríkjum Evrópusambandsins og var tekin upp í samninginn um Evrópska Efnahagssvæðið í kjölfar ákvörðunar sameiginlegu EES nefndarinnar 25. október árið 2019. MAR leysir af hólmi tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2003/6/EB (MAD) sem lög um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007 (vvl.) byggja á. Verðbréfaviðskiptalöggjöf Íslands hefur lengi vel mótast nánast alfarið af tilskipunum og reglugerðum frá Evrópusambandinu. Í þessari ritgerð er leitast við að meta hvaða áhrif MAR mun hafa á reglur og umgjörð um viðskipti innherja. Fyrsti kafli er tileinkaður umfjöllun um Evrópurétt og þeim grundvelli sem vvl. byggir á og sérstök áhersla lögð á aðdraganda og þá þróun sem liggur að baki MAD og MAR. Í öðrum kafla eru innherjum gerð skil eins og þeir eru skilgreindir í vvl. ásamt þeim breytingum sem MAR mun hafa í för með sér. Í þriðja kafla er gerð grein fyrir innherjalistum og áhrifum þess að vera settur á slíkan lista. Að auki er þar að finna helstu breytingar sem munu eiga sér stað með tilkomu MAR. Í fjórða kafla er varpað ljósi á núverandi mynd reglna um viðskipti innherja og hvaða breytingar þær reglur muni verða á þeim reglum með innleiðingur MAR. Í fimmta kafla er 1. tl. 1. mgr. 123. gr. vvl. skoðaður þar sem gert er grein fyrir helstu sjónarmiðum að baki reglunum auk þess sem gefinn er gaumur að helstu dómum sem hafa áhrif á túlkun ákvæðisins. Í sjötta kafla er samantekt og niðurlag. Þar er stiklað á stóru úr umfjöllun kaflanna á undan og dregnar saman þær breytingar og nýjungar sem MAR kemur til með að hafa á viðskipti og umgjörð innherja.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Haraldur Andrew Aikman 1997-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/36013
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/36013

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Haraldur Andrew Aikman 1997-. Breytingar og nýjungar í viðskiptum og umgjörð innherja með tilkomu MAR. 2020. http://hdl.handle.net/1946/36013