Back to results

Reykjavík University

Á móti banni við stríðsáróðri : fyrirvari Íslands við 1. mgr. 20. gr. Alþjóðasamningsins um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari ritgerð er rannsakaður fyrirvari, sem íslenska ríkið gerði við 1. mgr. 20. gr. Alþjóðasamnings Sameinuðu þjóðanna um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi en þar er kveðið á um að ríki leggi með lögum bann við öllum stríðsáróðri. Íslenska ríkið hefur haldið því fram í reglulegum skýrslum til mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna, sem hefur eftirlit með því að ríki standi við skuldbindingar samningsins, að ákvæðið stangist á við tjáningarfrelsisákvæði 73. gr. stjórnarskrár Íslands. Í byrjun ritgerðarinnar er krufið hvað felst í hugtakinu stríðsáróður. Gerð er grein fyrir skuldbindingargildi þjóðréttarsamninga og fyrirvörum við þá. Sérstakur kafli er um skýrslurnar sem Ísland hefur sent nefndinni og svör nefndarinnar við þeim. Almennar athugasemdir sem nefndin beinir til allra ríkja sem aðild eiga að samningnum eru skoðaðar m.a. með tilliti til þess hvaða lagalega stöðu þær hafa. Að lokum er ákvæði 73. gr. stjórnarskrár Íslands skoðað auk ákvæðisins um tjáningarfrelsi í 19. gr. samningsins um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi. Leitast er við að svara því hvort ástæða sé til þess að telja að bannið við stríðsáróðri stangist á við stjórnarskrárverndað tjáningarfrelsi manna. Niðurstöður ritgerðarinnar eru þær að bannið við stríðsáróðri takmarkar ekki tjáningarfrelsi manna með öðrum hætti en að vernda aðra hagsmuni sem eru takmörkuninni æðri. Tilgangurinn með banninu er sá að koma í veg fyrir að áróður geti dregið menn til aðgerða eins og var raunin í seinni heimsstyrjöldinni. Ríki komu sér saman um að koma í veg fyrir styrjaldir með þjóðréttarsamningum og vernda réttinn til lífs sem m.a. er tryggður í 6. gr. samningsins um borgarleg og stjórnmálaleg réttindi. Þessi tengsl milli réttar til lífs og banns við stríðsáróðri hefur mannréttindanefndin staðfest. Því er bannið við stríðsáróðri nánari útfærsla á þessu grundvallaratriði sem öllum ríkjum samningsins ber að tryggja.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Unnur Sigrún Þorbjargardóttir 1978-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/36012
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/36012

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Unnur Sigrún Þorbjargardóttir 1978-. Á móti banni við stríðsáróðri : fyrirvari Íslands við 1. mgr. 20. gr. Alþjóðasamningsins um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi. 2020. http://hdl.handle.net/1946/36012