Reykjavík University
Aðgangur almennings og fjölmiðla að þinghöldum í sakamálum : heimild til að kæra úrskurði um opin eða lokuð þinghöld
Abstract
dc:description.abstractTil að tryggja réttláta málsmeðferð fyrir dómi skal þinghaldi vera háttað svo að það sé opið almenningi. Sá réttur endurspeglar meginregluna um opinbera málsmeðferð. Þessi regla er tryggð í 6. gr. mannréttindasáttmála Evrópu nr. 62/1994 og 1. mgr. 70. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944. Í henni felst að almenningur, sem og fjölmiðlar, geta mætt í dómsali og heyrt hvað þar fer fram. Þó er ekki algengt að almenningur mæti í dómsali og því hafa fjölmiðlar mikilvægu hlutverki að gegna sem fulltrúar almennings þar í stað. Fjölmiðlar mæta í dómsali og fjalla um það sem þar fer fram í blöðum, útvarpi, sjónvarpi og netmiðlum. Það er undantekning frá meginreglunni um opinbera málsmeðferð að dómari geti á grundvelli 1. mgr. 10. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008, lokað þinghaldi telji hann það nauðsynlegt. Í þessari ritgerð verður fjallað um meginregluna um opinbera málsmeðferð og undantekningar frá henni. Þá verður einnig fjallað um hlutverk fjölmiðla og heimildir þeirra til að fjalla um sakamál og nafngreiningu sakaðra manna. Þá verður reynt að varpa ljósi á hvort fjölmiðlar geti á grundvelli 2. mgr. 10. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008, óskað eftir úrskurði um opin eða lokuð þinghöld. Niðurstöður ritgerðarinnar eru þær að dómstólar hafi almennt viðurkennt að fjölmiðlar hafi hagsmuni af því að málsmeðferð sé opin. Til að meginreglan um opinbera málsmeðferð nái markmiði sínu er nauðsynlegt að fjölmiðlar hafi frjálsan aðgang að dómstólum og þar af leiðandi upplýst almenning um gang og stöðu sakamála.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Birna Mjöll Styrmisdóttir 1993-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/36004
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/36004