Reykjavík University
Effectiveness of online-cognitive behavioral therapy for insomnia
Abstract
dc:description.abstractMarkmið rannsóknarinnar var að kanna árangur netmeðferðar frá Sleephubs sem byggist á hugrænni atferlismeðferð við svefnleysi með því að notast við þriggja og sex vikna meðferðarúrræði. Notast var við hentugleikaúrtak sem samanstóð af 55 breskum þátttakendum sem glímdu við að minnsta kosti eitt af einkennum svefnleysis og voru svefnmælingar skráðar fyrir og eftir meðferð. Við tölfræðilega úrvinnslu gagnanna voru pöruð t-próf notuð til þess að kanna sambandið á milli svefn breyta (tími sem tekur að sofna, vökutími eftir að hafa sofnað, fjöldi vaknanna, heildarvökutími, tími í rúmi, heildarsvefntími, svefnnýting, svefngæði og morgunþreyta) fyrir og eftir meðferð. Niðurstöður leiddu í ljós að eftir sex vikna meðferðina breyttust allar svefnbreyturnar marktækt til hins betra, fyrir utan tíma í rúmi og svefnnýtingu. Þessar niðurstöður eru í samræmi við það sem fyrri rannsóknir sýna. Þriggja vikna meðferðin virtist ekki bæta svefn, fyrir utan að draga úr fjölda vaknanna. Takmarkanir á rannsókninni eru stærð úrtaksins og enginn samanburðarhópur. Þrátt fyrir þessar takmarkanir þá eykur þessi rannsókn við þekkinguna á HAM-netmeðferð við svefnleysi þar sem sýnt þykir að sú meðferð sé áhrifarík við svefnleysi sem er stórt vandamál á heimsvísu. Lykilorð: hugræn atferlismeðferð, HAM-netmeðferð, svefnleysi
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Árný Björk Birgisdóttir 1996-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- en
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/35863
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/35863