Reykjavík University
Knowledge and attitudes towards sport related concussions among university students in Iceland
Abstract
dc:description.abstractHeilahristingar í íþróttum hafa fengið aukna athygli á síðustu árum. Íþróttafólk í öllum íþróttum getur fengið heilahristing, það gerist reglulega og um helmingur heilahristinga eru ekki tilkynntir. Það er mikilvægt að vita hvar almenningur stendur varðandi þekkingu og viðhorf til heilahristings. Íþrótta áhorfendur, fréttamiðlar og foreldrar barna í íþróttum teljast öll til almennings. Þau geta haft áhrif á íþróttafólk sem fær heilahristing með sínum viðbrögðum og hegðun. Núverandi rannsókn skoðar þekkingu og viðhorf nema í Háskólanum í Reykjavík gagnvart heilahristingum í íþróttum. Til að mæla þekkingu og viðhorf þátttakenda var notast við aðlagaðan og þýddan Rosenbaum Concussion Knowledge and Attitudes Survey Student Version (RoCKAS-ST). 252 háskólanemar tóku þátt í þessari rannsókn. Niðurstöður benda til þess að fræðsla um heilahristing stuðli að betri þekkingu á heilahristing í íþróttum. Lykilorð: heilahristingur í íþróttum, fræðsla um heilahristing, þekking á heilahristingi, viðhorf gagnvart heilahristingi, íþróttafólk, háskólanemar
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Hildur Antonsdóttir 1995-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 10Rights
- Language dc:language.iso
- en
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/33228
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/33228