Back to results

Reykjavík University

Áhrif óvæntra stýrivaxtabreytinga á ávöxtunarkröfu : Atburðarrannsókn 2010-2018

Abstract

dc:description.abstract

Helsta stýritæki Seðlabanka Íslands til að framfylgja peningastefnu sinni eru stýrivextir hans. Stýrivextir eru hornsteinn vaxtarófsins á Íslandi, en þeir hafa bæði bein og óbein áhrif á vexti til lengri og skemmri tíma. Rannsókn þessi snýr einna helst að áhrifum óvæntra stýrivaxtabreytinga á ávöxtunarkröfu tveggja ríkisskuldabréfa og millibankavaxta. Væntingar markaðarins eru metnar út frá spám greiningardeilda viðskiptabankanna þriggja. Framkvæmd er aðhvarfsgreining og áhrifin metin yfir svokallaðan atburðarglugga, frá tveimur viðskiptadögum fyrir ákvörðun stýrivaxta þar til tveimur dögum eftir ákvörðun þeirra. Einnig eru þau metin innan hvers dags fyrir sig í atburðarglugganum. Niðurstöður sýna að allar ávöxtunarkröfurnar, er nefndar voru hér að framan, bregðast tölfræðilega marktækt við óvæntri breytingu stýrivaxta, sem og að þau eru mest á ákvörðunardegi þeirra. Þá er sjónum rannsakenda einnig beint að gjaldeyrishöftunum en þau voru losuð í mars 2017. Við samanburð á viðbrögðum ávöxtunarkrafnanna kemur í ljós að áhrif óvæntra stýrivaxtabreytinga virðast meiri á tímabilinu eftir losun gjaldeyrishaftanna.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Arnór Brynjarsson 1996-
  • Sigrún Vala Hauksdóttir 1996-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/33066
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/33066

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Arnór Brynjarsson 1996-; Sigrún Vala Hauksdóttir 1996-. Áhrif óvæntra stýrivaxtabreytinga á ávöxtunarkröfu : Atburðarrannsókn 2010-2018. 2019. http://hdl.handle.net/1946/33066