Abstract
dc:description.abstractStafræn markaðssetning hefur þróast jafnt og þétt í tæpa tvo áratugi og gegnir í dag afar stóru hlutverki í nútíma markaðssetningu. Fyrirtæki verða að tileinka sér stafræna markaðssetningu til vera samkeppnishæf á markaðnum. Markmið þessarar rannsóknar var að öðlast þekkingu á þeim áhrifum sem stafræn markaðssetning getur haft á ímynd fyrirtækja. Sérstaklega voru skoðuð áhrif rafræns umtals á fyrirtæki með áherslu á samfélagsmiðla. Framkvæmdar voru tvær rannsóknir, annars vegar eigindleg rannsókn og hins vegar megindleg rannsókn. Eigindlega rannsóknin var í formi hálfopinna viðtala við sérfræðinga með ólíkan bakgrunn í markaðsfræði og megindlega rannsóknin var í formi spurningakönnunar sem send var út í gegnum samfélagsmiðilinn Facebook. Þátttakendur spurningakönnuninnar voru 154 talsins. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að rafrænt umtal hafi áhrif á ímynd fyrirtækja. Þær benda einnig til þess að áhrifin séu mismikil eftir því hvort að umtalið sé jákvætt eða neikvætt. Niðurstöður sýna enn fremur fram á að jákvætt umtal á samfélagsmiðlum sé algengara en neikvætt, að rafrænt umtal hafi áhrif á kauphegðun neytanda og að umsagnir neytenda á netinu teljist trúverðugari en upplýsingar fyrirtækja á vefsíðum þeirra. Lykilorð: Stafræn markaðssetning, samfélagsmiðlar, rafrænt umtal, ímynd fyrirtækja, kauphegðun.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Authors dc:creator
-
- Andrés Már Jóhannesson 1988-
- Ellert Heiðar Vilhelmsson 1987-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/33022
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/33022