Reykjavík University
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins : þrek- og þolmælingar á starfsmönnum SHS
Abstract
dc:description.abstractMarkmið þessarar rannsóknar var að leggja fram tillögur að uppfærslu og betrumbætingu á líkamlegu stöðuprófi starfsmanna Slökkviliðs höfuðborgasvæðisins (SHS), sem allir starfsmenn sem fara í útköll þurfa að taka árlega. Alls tóku 23 starfsmenn SHS þátt í rannsókninni og ný próf voru keyrð og borin saman við þau sem nú eru í notkun. Skoðað var hvað slökkvilið annars staðar í heiminum kanna í slíkum prófum og notaðar erlendar rannsóknir til að ákvarða hvaða próf líkjast best þeim aðstæðum sem verða á vettvangi slökkvistarfs. Að auki var skoðað hvort að sömu kröfur ættu að vera gerðar til allra aldurshópa og beggja kynja þar sem erlendar rannsóknir hafa sýnt fram á að það hallar á konur þegar það kemur að líkamlegum þáttum eins og styrk og loftháðu þoli. Niðurstöður leiddu í ljós að elsti hópurinn, sem starfsmenn á aldursbilinu 44-59 ára tilheyrðu, skoruðu lægst á öllum prófum fyrir utan gripprófið og er það í samræmi við aðrar rannsóknir. Konurnar voru með töluvert lakari gripstyrk, og tveir einstaklingar hefðu fallið á nýju prófunum ef þau væru tekin í dag og einn hefði fallið á prófunum sem eru nú í notkun. Fylgnin var sterkust með æfingum sem tóku á efri hluta líkamans. Miðað við niðurstöður erlendra rannsókna líkist nýja þol og þrekprófið mikið meira þeim aðstæðum sem starfsmenn verða fyrir á vettvangi heldur en þau próf sem notuð eru nú.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Fjölnir Bjarnason 1994-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/32361
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/32361