Back to results

Reykjavík University

Mæling á notendaupplifun á Sjónvarpi Símans

Abstract

dc:description.abstract

Sjónvarp Símans er gagnvirkt sjónvarp með grafískt notendaviðmót sem býður notendum upp á línulega og ólínulega dagskrá sjónvarpsefnis. Sjónvarp Símans Premium er áskriftarleið sem býður upp á fjölmargar kvikmyndir og þáttaraðir eða um 8 þúsund klukkustundir af efni og eru áskrifendur um það bil 35.000 einstaklingar. Þegar notendur nota vöru þá þarf upplifun þeirra að vera ánægjuleg svo þeir séu líklegri til að vilja nota vöruna aftur. Notendur verða hliðhollir vörum ef þær falla að gildum þeirra og uppfylla markmið notendanna. Þess vegna er notendaupplifun mikilvæg. Markmið rannsóknarinnar er að mæla notendaupplifun á Sjónvarpi Símans. Rannsakendur notuðu fjórar mismunandi aðferðir; eigin upplifun, viðtöl við notendaþjónustu, notendaprófanir fyrir vana og nýja notendur og spurningalista í formi vefkönnunar. Afrakstur rannsóknarinnar er tvíþættur; ferlar sem rannsakendur mæla með fyrir Símann til að gera frekari mælingar í framtíðinni og tillögur að umbótum í viðmóti sem gæti bætt notendaupplifun af Sjónvarpi Símans. Meginniðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að notendaupplifun áskrifenda Sjónvarps Símans Premium sé almennt góð. Sjónvarp Símans virðist uppfylla kröfur notenda sinna og falla að gildum þeirra þar sem þjónustan er sú vinsælasta á Íslandi í dag. Þó kom jafnframt í ljós að stór hluti notenda virðast hafa takmarkaða þekkingu á viðmótinu og ná þar með ekki að nýta valmöguleika Sjónvarps Símans til fulls.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Maggý Helga Jóhannsdóttir Möller 1979-
  • Svanhildur Jóna Erlingsdóttir 1984-
  • Sævald Viðarsson 1987-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/32314
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/32314

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Maggý Helga Jóhannsdóttir Möller 1979-; Svanhildur Jóna Erlingsdóttir 1984-; Sævald Viðarsson 1987-. Mæling á notendaupplifun á Sjónvarpi Símans. 2019. http://hdl.handle.net/1946/32314