Back to results

Reykjavík University

Áhrif þjálfunar, iðkunar, aðbúnaðar og umhverfis á árangur kvenna í knattspyrnu

Abstract

dc:description.abstract

Efni ritgerðarinnar er úrvinnsla á könnun sem var send á A- landsliðshóp kvenna í knattspyrnu sem tók þátt í lokakeppni EM 2009. Megin markmið rannsóknarinnar var að kanna hvaða þættir, svo sem áhrif þjálfunar, iðkunar, aðbúnaðar og umhverfis hefðu hugsanlega á árangur kvenna í knattspyrnu og að sýna fram á hvaða þættir það eru, sem stuðla að afreksmennsku kvenna í knattspyrnu. Þátttakendur í rannsókninni voru leikmenn A-landsliðs kvenna sem tóku þátt í EM kvenna í Finnlandi 2009. Spurningarlisti var lagður fyrir leikmennina þar sem spurt var um menntun, námsárangur, áhrif annarra íþróttagreina, meistaraflokksferil, aðbúnað, stuðning fjölskyldu, uppeldisstað og félag, aldur og fæðingarmánuð. Að auki voru tvær skriflegar, annars vegar um góð ráð til yngri iðkenda og hins vegar hvaða þættir þær töldu stuðla að því að þær hafi náð langt í knattspyrnu. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar voru þær að afreksmennska í íþróttum og námsárangur helst í hendur sem og að menntun liðsins sé góð. Áhrif annarra íþróttagreina eru mikil. Einnig leiddu niðurstöðurnar í ljós að aðstaða var frekar góð á uppvaxtarárunum, þó svo að það jafnist ekki á við þá aðstöðu sem við höfum í dag. Einnig kom í ljós að stuðningur foreldra og nánasta umhverfis var þeim mjög mikilvægur. Að lokum sýna niðurstöðurnar að þær byrja flestar mjög snemma í meistaraflokki eða 14-15 ára.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Páll Árnason 1986-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/31683
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/31683

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Páll Árnason 1986-. Áhrif þjálfunar, iðkunar, aðbúnaðar og umhverfis á árangur kvenna í knattspyrnu. 2018. http://hdl.handle.net/1946/31683