Back to results

Reykjavík University

Mælingar á hámarkssúrefnisupptöku einstaklings með mænuskaða: aðlaganir og framkvæmd

Abstract

dc:description.abstract

Eftirfarandi rannsókn var framkvæmd með það að leiðarljósi að auðvelda mælingar á súrefnisupptöku hjá einstaklingum með mænuskaða. Einnig var unnin handhæg handbók til að auðvelda framkvæmd mælinga af þessu tagi og aðlaganir sem þarf að gera á þeim. Þrjár mælingar voru gerðar á sex mánaða tímabili Þátttakandi rannsóknarinnar var 27 ára gömul kona með mænuskaða við T5 og fóru mælingarnar fram á handhjóli. Skráðar voru upplýsingar um hámarkssúrefnisupptöku (VO2max), hjartslátt og öndun (l/min), RER (e. respiratory exchange ratio) og erfiðleikastig mælingar metið, RPE (e. rating of perceived exertion). Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að þátttakandinn hefur lægra VO2max gildi í samanburði við rannsóknir á einstaklingum með styrk í fótum, en þó sambærilegt við einstaklinga með mænuskaða. Niðurstöður leiddu einnig í ljós að mæla má með handhjóli hámarkssúrefnisupptöku hjá einstaklingum með mænuskaða. Vert er að hafa í huga staðsetningu mænuskaðans í hryggsúlu þar sem hann hefur áhrif á líkamlega frammistöðu. Því ofar sem skaðinn er því meiri hömlun og minni líkamleg afköst. Álykta má að þátttakandi hafi lægra VO2max gildi en sjá má í öðrum rannsóknum vegna mænuskaðans. Lykilorð: VO2max, handhjól (e. handcycling), mænuskaði (e. spinal cord injury).

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Jóna Guðbjörg Árnadóttir 1981-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/31053
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/31053

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Jóna Guðbjörg Árnadóttir 1981-. Mælingar á hámarkssúrefnisupptöku einstaklings með mænuskaða: aðlaganir og framkvæmd. 2018. http://hdl.handle.net/1946/31053