Reykjavík University
Hvaða áhrif hefur djúpvatnshlaup á getu leikmanna við framkvæmd á snerpu
Abstract
dc:description.abstractMeginmarkmið rannsóknarinnar var að athuga hvort að hægt væri að bæta þol knattspyrnu leikmanna með djúpvatnshlaupi. Í þessari ritgerð er farið yfir niðurstöður í Illinois agility prófinu og er meginmarkmiðið að athuga hvaða áhrif djúpvatnshlaup hefur á getu leikmanna í framkvæmd á snerpu eftir hlaup í vatni. Gerð var íhlutunar samanburðarrannsókn og stóð íhlutunin í sjö vikur. Þátttakendur í rannsókninni voru alls 45 og æfa þeir með Ungmennafélagi Breiðabliks í Kópavogi. Þátttakendum var skipt upp í tvo handahófskennda hópa þar sem annar stundaði þolþjálfun á landi og hinn hlaup í vatni. Framkvæmdar voru mælingar á þáttakendum fyrir og eftir íhlutunina og var tekinn samanburður á niðurstöðum úr Illinois agility prófinu. Vonast var eftir því að djúpvatnshlaup hafi jákvæð áhrif á getu leikmanna í framkvæmd á snerpu. Niðurstöður sýndu að ekki var marktækur (p>0,05) munur á milli bætinga í hópunum sjálfum en leikmenn sem stunduðu djúpvatnshlaup í sjö vikur bættu sig marktækt (p=0,013) meira heldur en hópurinn sem stundaði þolþjálfun á landi.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Fanney Þóra Þórsdóttir 1994-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/31043
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/31043