Back to results

Reykjavík University

Viðhorf til markaðssamskipta gegnum áhrifavalda á samfélagsmiðlum og áhrif þeirra á kauphegðun neytenda

Abstract

dc:description.abstract

Þróun á stafrænni markaðssetningu hefur aukist til muna og er ein helsta ástæða þess aukning notenda á Veraldarvefnum. Í kjölfar þess hefur markaðssetning tekið breytingum á síðustu árum og fela þær breytingar meðal annars í sér að fyrirtæki séu í auknum mæli að víkja frá hefðbundnum markaðsleiðum og vilja reyna á þau markaðstækifæri sem standa til boða á samfélagsmiðlum. Vegna þess hvernig samfélagsmiðlar hafa auðveldað fólki öll samskipti þurfa fyrirtæki í enn ríkari mæli en áður að huga vel að viðhorfum neytenda til fyrirtækisins og vörumerkja þess. Ritgerð þessi er 12 ECTS eininga lokaverkefni til B.Sc. gráðu í viðskiptafræði við Háskólann í Reykjavík. Verkefnið byggir á rannsókn og var markmiðið að greina hvort breytingar eigi sér stað á áhrifamætti markaðssamskipta gegnum áhrifavalda ef fleiri en einn áhrifavaldur kynnir sömu skilaboð á sama tíma. Einnig var kannað hver viðhorf neytenda væru til þessarar tilteknu vöru/þjónustu. Í rannsókninni var notast við eigindlega rannsóknaraðferð í formi djúpviðtala, sem tekin voru við tíu ungar konur. Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að áhrifamáttur markaðssamskipta getur orðið fyrir breytingum, eftir því hversu mikill fjöldi áhrifavalda auglýsir sömu vörur á sama tíma. Enn fremur leiddu niðurstöður í ljós að viðhorf þátttakenda til áhrifavaldamarkaðssetningar almennt sé fremur jákvætt. Þegar margir áhrifavaldar auglýsa sömu vörur eða þjónustu á sama tíma verður viðhorfið hins vegar töluvert neikvæðara.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Kamila Dabrowska 1994-
  • Soffía Dögg Andradóttir 1995-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/30811
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/30811

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Kamila Dabrowska 1994-; Soffía Dögg Andradóttir 1995-. Viðhorf til markaðssamskipta gegnum áhrifavalda á samfélagsmiðlum og áhrif þeirra á kauphegðun neytenda. 2018. http://hdl.handle.net/1946/30811