Reykjavík University
Hin vandasömu verk dómstóla við ákvörðun refsingar þegar brot eru framin með þokukenndum ásetningi : með áherslu á fíkni- og vímuefnavanda síðastliðinn áratug
Abstract
dc:description.abstractÍ ritgerð þessari verður fjallað um hin vandasömu verk dómstóla við ákvörðun refsingar þegar brot eru framin með þokukenndum ásetningi. Í ritgerðinni verður skoðað hvað veldur því að ákvörðun refsingar getur verið flókin. Grundvallarhugtak ritgerðarinnar er þokukenndur ásetningur en hann auðveldar dómstólum ekki hlutverkið. Hugtakið hefur ekki neina fastmótaða þýðingu í íslenskum rétti, því engar heildstæðar lagareglur gilda um það. Er einna helst að styðjast við 75. gr. almennra hegningalaga nr. 19/1940, þar sem kveðið er á um annarlegt ástand sakbornings, sem getur heimilað lægri refsingu til handa sakborningi eða jafnvel að refsing sé felld niður. Nánar tiltekið verður efnið nálgast út frá nútímalegri hugsun þar sem brot sakbornings eru oft tengd heilbrigðisvandamáli. Einnig verður efnið afmarkað við mörk þokukennds ásetnings og ósakhæfis og þau ákvæði sem koma til álita í því samhengi, sbr. 15. gr., 16. gr. og 17. gr. hgl. sem varða geðrænt sakhæfi. Í umfjölluninni verður dómaframkvæmd Hæstaréttar- og héraðsdóms í málum sem varða þokukenndan ásetning skoðuð. Þannig er gerð grein fyrir álitaefninu og ljósi varpað á það hvaða viðmið dómstólar nota við úrlausn slíkra mála og hvað ræður för þegar þeir komast að endanlegri niðurstöðu. Í lok ritgerðar verða helstu niðurstöður og þau atriði sem vöktu athygli höfundar dregin saman en höfundur er sannfærður um að með tilkomu Landsréttar muni Hæstiréttur rökstyðja úrlausn mála sinna betur sem muni dýpka skilning almennings á því hvaða leiðir eru valdar hverju sinni og þeim rökum sem búa þar að baki.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Guðrún Ósk Baldursdóttir 1993-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/29896
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/29896