Back to results

Reykjavík University

Hin vandasömu verk dómstóla við ákvörðun refsingar þegar brot eru framin með þokukenndum ásetningi : með áherslu á fíkni- og vímuefnavanda síðastliðinn áratug

Abstract

dc:description.abstract

Í ritgerð þessari verður fjallað um hin vandasömu verk dómstóla við ákvörðun refsingar þegar brot eru framin með þokukenndum ásetningi. Í ritgerðinni verður skoðað hvað veldur því að ákvörðun refsingar getur verið flókin. Grundvallarhugtak ritgerðarinnar er þokukenndur ásetningur en hann auðveldar dómstólum ekki hlutverkið. Hugtakið hefur ekki neina fastmótaða þýðingu í íslenskum rétti, því engar heildstæðar lagareglur gilda um það. Er einna helst að styðjast við 75. gr. almennra hegningalaga nr. 19/1940, þar sem kveðið er á um annarlegt ástand sakbornings, sem getur heimilað lægri refsingu til handa sakborningi eða jafnvel að refsing sé felld niður. Nánar tiltekið verður efnið nálgast út frá nútímalegri hugsun þar sem brot sakbornings eru oft tengd heilbrigðisvandamáli. Einnig verður efnið afmarkað við mörk þokukennds ásetnings og ósakhæfis og þau ákvæði sem koma til álita í því samhengi, sbr. 15. gr., 16. gr. og 17. gr. hgl. sem varða geðrænt sakhæfi. Í umfjölluninni verður dómaframkvæmd Hæstaréttar- og héraðsdóms í málum sem varða þokukenndan ásetning skoðuð. Þannig er gerð grein fyrir álitaefninu og ljósi varpað á það hvaða viðmið dómstólar nota við úrlausn slíkra mála og hvað ræður för þegar þeir komast að endanlegri niðurstöðu. Í lok ritgerðar verða helstu niðurstöður og þau atriði sem vöktu athygli höfundar dregin saman en höfundur er sannfærður um að með tilkomu Landsréttar muni Hæstiréttur rökstyðja úrlausn mála sinna betur sem muni dýpka skilning almennings á því hvaða leiðir eru valdar hverju sinni og þeim rökum sem búa þar að baki.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Guðrún Ósk Baldursdóttir 1993-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/29896
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/29896

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Guðrún Ósk Baldursdóttir 1993-. Hin vandasömu verk dómstóla við ákvörðun refsingar þegar brot eru framin með þokukenndum ásetningi : með áherslu á fíkni- og vímuefnavanda síðastliðinn áratug. 2018. http://hdl.handle.net/1946/29896