Back to results

Reykjavík University

Viðhorf til hugrænnar þjálfunar í knattspyrnu : eigindlega rannsókn á viðhorfi íslenskra knattspyrnuþjálfara til hugrænnar þjálfunar

Abstract

dc:description.abstract

Er hægt að þjálfa hugarfarslega eiginleika? Í þessari eigindlegu rannsókn var leitað eftir viðhorfum íslenskra knattspyrnuþjálfara til hugrænnar þjálfunar. Tekin voru viðtöl við sex knattspyrnuþjálfara um ýmis atriði tengd hugrænni þjálfun. Velt var upp spurningum eins og hvort hugrænir eiginleikar væru meðfæddir, hvaða hugrænu eiginleikar væru mikilvægastir fyrir knattspyrnumenn að tileinka sér, hvernig staðið væri að hugrænni þjálfun í dag og hvort gera megi betur á einhverjum sviðum hugrænnar þjálfunar? Í ljós kom að allir viðmælendur töldu að hægt væri að gera betur eða auka markvissu hugrænnar þjálfunar. Enginn þeirra sem rætt var við taldi ófært að kenna hugræna færni og allir viðmælendur töldu að hefja ætti kennslu hugrænna eiginleika snemma ævinnar og aldrei seinna en um 14 ára aldur. Allir viðmælendurnir eru reyndir þjálfarar með víðtæka reynslu en þó er ekki hægt að alhæfa um niðurstöður þessarar rannsóknar yfir á alla þjálfara á Íslandi. Rannsakandi var ánægður með útkomu verkefnisins og telur hana gefa góða hugmynd um skoðanir þjálfara varðandi þjálfun hugrænnar færni. Hægt er að nýta niðurstöður þessa verkefnis til frekari rannsókna. Ótal rannsóknir af þessu tagi hafa verið framkvæmdar erlendis en vöntun er á frekari rannsóknum hér á landi.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Björn Orri Hermannsson 1989-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/28849
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/28849

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Björn Orri Hermannsson 1989-. Viðhorf til hugrænnar þjálfunar í knattspyrnu : eigindlega rannsókn á viðhorfi íslenskra knattspyrnuþjálfara til hugrænnar þjálfunar. 2017. http://hdl.handle.net/1946/28849