Back to results

Reykjavík University

Aðgangur þriðja aðila að gögnum í tengslum við skaðabætur í einkamálum

Abstract

dc:description.abstract

Í ritgerðinni er áhersla lögð á að gera skil á þeim leiðum sem tjónþolum stendur til boða í íslenskum rétti til að fá aðgang að gögnum og upplýsingum sem nauðsynleg eru til að meta umfang tjóns vegna samkeppnisbrota. Brot á samkeppnisreglum skaða samfélagið í heild. Ekki einungis fyrirtæki sem starfa á tilteknum markaði heldur viðskiptavini og neytendur eða svokallaða þriðju aðila, sem þar eiga viðskipti. Byrjað er á að fjalla um þær reglur sem eru til staðar í löggjöf í dag samkvæmt stjórnsýslulögum og þann aðgang sem upplýsingalög veita almenningi. Jafnframt er gerð grein fyrir ákvæðum einkamálalaga sem hægt er að beita til að komast yfir sönnunargögn sem liggja hjá tjónvaldi og kannað hvort þau skili árangri. Í þessu tilliti er litið til fjölda dómafordæma í íslenskri réttarframkvæmd og þeim gerð skil. Farið er yfir þau vandkvæði sem tengjast upplýsingaskiptum milli keppinauta í tengslum við rekstur ágreiningsmála á milli þeirra. Umbeðnar upplýsingar geta verið þess eðlis að þær varða innsta kjarna fyrirtækja og mega þar af leiðandi ekki fara í hendur annarra og hvað þá til samkeppnisaðila. Þar koma sjónarmið um upplýsingaskipti samkvæmt 10. gr. samkeppnislaga til skoðunar og vikið að því hvort íslensk löggjöf hafi að geyma úrræði þegar svo stendur á. Því næst er stuttlega gert grein fyrir nýsettri tilskipun Evrópusambandsins um skaðabætur vegna brota gegn samkeppnisreglum Evrópusambandsins og aðildarríkja. Að lokum eru helstu niðurstöður ritgerðarinnar dregnar saman og þeim gerð skil.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Hörn Harðardóttir 1979-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/28282
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/28282

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Hörn Harðardóttir 1979-. Aðgangur þriðja aðila að gögnum í tengslum við skaðabætur í einkamálum. 2017. http://hdl.handle.net/1946/28282