Back to results

Reykjavík University

Ólgusjór bankageirans : aukin tækninotkun neytenda, nýjar reglugerðir, Fintech fyrirtæki og breytingar í neyslumynstri viðskiptavina

Abstract

dc:description.abstract

Ný reglugerð er varðar greiðsluþjónustu mun breyta bankaþjónustu eins og hún þekkist í dag. Bankar munu neyðast til að opna á gögnin sín sem mun gera þriðja aðila kleift að bjóða upp á fjármálatengda þjónustu með markvissari hætti en áður. Í þessu verkefni er fjallað um bankageirann og þær ógnir sem að honum stafa ekki hvað síst með tilkomu nýrrar reglugerðar, aukinnar tækninotkunar viðskiptavina og aukins ágangs frá Fintech fyrirtækjum. Greint verður frá þeim breytingum sem orðið geta á greiðsluþjónustu bankanna og þeim þjónustu nýjungum sem sprottið geta upp þegar opnað verður á gögn bankanna. Einnig verður farið yfir þær leiðir sem bankar geta farið til þess að bregðast við nýrri reglugerð og horft verður til mögulegs bankamódels framtíðarinnar. Verkefnið leiddi í ljós að bankar standa frammi fyrir ógnum og þurfa að bregðast við, ætli þeir sér ekki að enda eins og risaeðlurnar sem enginn ógnaði þar til loftsteinninn skall á jörðinni. Kröfur neytenda verða sífellt meiri og viðskiptavinir bankanna vilja meiri sjálfvirkni í viðskiptum við þá samkvæmt niðurstöðu spurningakönnunar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Ólöf Marý Waage Ragnarsdóttir 1994-
  • Willard Nökkvi Ingason 1994-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/28234
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/28234

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ólöf Marý Waage Ragnarsdóttir 1994-; Willard Nökkvi Ingason 1994-. Ólgusjór bankageirans : aukin tækninotkun neytenda, nýjar reglugerðir, Fintech fyrirtæki og breytingar í neyslumynstri viðskiptavina. 2017. http://hdl.handle.net/1946/28234