Back to results

Reykjavík University

Íslensk fasteignafélög og skýringarkröfur IFRS 13 um mat á gangvirði

Abstract

dc:description.abstract

Í þessu verkefni eru skoðaðar skýringar á gangvirðismati fasteignafélaga á fjárfestingareignum þeirra. Leitað er svara við því hvort íslensku fasteignafélögin séu að framfylgja skýringarkröfum IFRS 13 og hvort munur sé á skýringum þeirra eftir innleiðingu staðalsins. Áhersla er lögð á íslensku fasteignafélögin sem skráð eru á markaði og skýringar þeirra bornar saman við skýringar fasteignafélaga í Svíþjóð, Noregi og Finnlandi. Skýrt er frá alþjóðlega reikningsskilastaðlinum IFRS 13 og helstu köflum hans. IFRS 13 staðallinn segir ekki hvenær félag skal meta eignir og skuldir á gangvirði heldur einungis hvernig þær skulu metnar. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að ekkert félag gerir greinargóða lýsingu á ferlinu við ákvörðun gangvirðis og uppfylla því ekki eina af skýringarkröfum staðalsins. Einnig fylgja félögin ekki skýringarkröfum staðalsins um næmisgreiningu með fullnægjandi hætti. Lítill sem enginn munur er á þeim aðferðum sem íslensku fasteignafélögin nota við gangvirðismat á fjárfestingareignum sínum. Helstu niðurstöður við samanburð á aðferðum íslensku og erlendu fasteignafélaganna við mat á gangvirði eru þær að erlendu félögin fá óháða utanaðkomandi aðila ýmist til að endurskoða ferlið við gangvirðismatið og/eða til að meta gangvirði fjárfestingareigna félaganna.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Haukur Sverrisson 1993-
  • Ísak Andri Arnarson 1993-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/28222
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/28222

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Haukur Sverrisson 1993-; Ísak Andri Arnarson 1993-. Íslensk fasteignafélög og skýringarkröfur IFRS 13 um mat á gangvirði. 2017. http://hdl.handle.net/1946/28222