Reykjavík University
Íslensk fasteignafélög og skýringarkröfur IFRS 13 um mat á gangvirði
Abstract
dc:description.abstractÍ þessu verkefni eru skoðaðar skýringar á gangvirðismati fasteignafélaga á fjárfestingareignum þeirra. Leitað er svara við því hvort íslensku fasteignafélögin séu að framfylgja skýringarkröfum IFRS 13 og hvort munur sé á skýringum þeirra eftir innleiðingu staðalsins. Áhersla er lögð á íslensku fasteignafélögin sem skráð eru á markaði og skýringar þeirra bornar saman við skýringar fasteignafélaga í Svíþjóð, Noregi og Finnlandi. Skýrt er frá alþjóðlega reikningsskilastaðlinum IFRS 13 og helstu köflum hans. IFRS 13 staðallinn segir ekki hvenær félag skal meta eignir og skuldir á gangvirði heldur einungis hvernig þær skulu metnar. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að ekkert félag gerir greinargóða lýsingu á ferlinu við ákvörðun gangvirðis og uppfylla því ekki eina af skýringarkröfum staðalsins. Einnig fylgja félögin ekki skýringarkröfum staðalsins um næmisgreiningu með fullnægjandi hætti. Lítill sem enginn munur er á þeim aðferðum sem íslensku fasteignafélögin nota við gangvirðismat á fjárfestingareignum sínum. Helstu niðurstöður við samanburð á aðferðum íslensku og erlendu fasteignafélaganna við mat á gangvirði eru þær að erlendu félögin fá óháða utanaðkomandi aðila ýmist til að endurskoða ferlið við gangvirðismatið og/eða til að meta gangvirði fjárfestingareigna félaganna.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Authors dc:creator
-
- Haukur Sverrisson 1993-
- Ísak Andri Arnarson 1993-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/28222
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/28222