Back to results

Reykjavík University

Uppgjör íslenskra félaga í erlendri mynt

Abstract

dc:description.abstract

Rannsókn þessi fjallar um íslensk félög sem hafa heimild til færslu bókhalds og samnings ársreiknings í erlendri mynt. Við gerð rannsóknarinnar var aflað gagna úr ársreikningum þessara félaga en þau eru alls 236 talsins. Jafnframt voru tekin viðtöl við forsvarsmenn fjögurra félaga ásamt viðtali við sérfræðing á þessu sviði. Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að langflest félaganna notast við evru eða bandaríkjadal. Auk þess kemur fram að algengara er innan ákveðinna atvinnugreina að félög færi bókhald og semji ársreikning í erlendum gjaldmiðli. Niðurstöðurnar gefa jafnframt til kynna að félög sem færa bókhald og semja ársreikning í erlendri mynt skila hlutfallslega betri rekstrarniðurstöðu og eru fjárhagslega betur stæð en önnur íslensk félög. Teknar eru saman nokkrar ástæður þess að stjórnendur félaga ákveða að breyta um gjaldmiðil í rekstri þeirra. Þær helstu eru minni áhrif gengisbreytinga og réttari mynd af rekstri félaganna. Ennfremur benda niðurstöðurnar til þess að tímasetning með tilliti til gengis íslensku krónunnar geti skipt máli þegar breytt er um rekstrargjaldmiðil hjá félögum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Egill Guðlaugsson 1993-
  • Þórdís Björk Gunnarsdóttir 1993-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/28211
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/28211

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Egill Guðlaugsson 1993-; Þórdís Björk Gunnarsdóttir 1993-. Uppgjör íslenskra félaga í erlendri mynt. 2017. http://hdl.handle.net/1946/28211