Abstract
dc:description.abstractTilgangur verkefnisins var að skoða annars vegar hvort hagkvæmt væri að innleiða HPV frumskimun fyrir leghálskrabbameini á Íslandi í aldurshópnum 30-65 ára og hins vegar hvort hagkvæmt væri að gera þær mælingar hérlendis. Gerð var kostnaðargreining á starfsemi frumurannsóknarstofunnar á Íslandi ásamt áætluðum kostnaði við HPV mælingar hérlendis og borið saman við sambærilegan kostnað hjá þremur erlendum rannsóknarstofum. Í fyrsta lagi benda niðurstöður til þess að fjárhagslega hagkvæmt yrði að innleiða HPV frumskimun hér á landi í aldurshópnum 30-65 ára. Í öðru lagi gæti HPV frumskimun minnkað sjúkdómsbyrði og fækkað dauðsföllum af völdum leghálskrabbameins. Í þriðja lagi yrði hagkvæmara að framkvæma HPV mælingar erlendis en hérlendis. Að lokum væri fjárhagslega hagkvæmara að útvista allri frumurannsóknarstarfsemi tengdri skimun fyrir leghálskrabbameini til erlendrar rannsóknarstofu í stað þess að framkvæma þessar rannsóknir hérlendis eins og nú er gert. Heilbrigðisyfirvöld á Íslandi ættu að skoða sem fyrst fýsileika þess að innleiða HPV frumskimun hér á landi. Lykilorð: HPV, kostnaðargreining, skimun, leghálskrabbamein.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Björn Kristjánsson 1992-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/28188
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/28188