Back to results

Reykjavík University

Framtíð sjónvarps á Íslandi : áhrif erlendra efnisveita og tækniþróunar á íslenskan sjónvarpsmarkað

Abstract

dc:description.abstract

Fyrirtæki á íslenskum sjónvarpsmarkaði hafa gengið í gegnum miklar breytingar á síðustu árum. Innkoma erlendra efnisveita og stöðug tækniþróun hefur ekki aðeins breytt áhorfsvenjum neytenda heldur einnig hvernig þeir nálgast sjónvarpsefni. Í þessari ritgerð verður fjallað um þau áhrif sem tækniþróun og innkoma erlendra efnisveita hefur haft á leiðandi fyrirtæki á íslenskum sjónvarpsmarkaði. Ásamt því að farið verður yfir þær áherslur sem fyrirtækin hafa sett sér á tímum stöðugra tæknibreytinga og alþjóðavæðingar. Rannsókn var framkvæmd með eigindlegum rannsóknaraðferðum, þar sem skyggnst var inn í reynsluheim stjórnenda stærstu fyrirtækjanna á íslenskum sjónvarpsmarkaði. Settar voru fram fjórar rannsóknarspurningar, fyrst var rannsakað þau áhrif sem innkoma erlendra efnisveita hefur haft á íslenskan sjónvarpsmarkað. Því næst voru áhrif tækniþróunar á íslenskan sjónvarpsmarkað rannsökuð. Í þriðja lagi var framtíð línulegs áhorfs rannsökuð og síðast var staða auglýsinga á íslenskum sjónvarpsmarkaði rannsökuð. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að tækniþróunin sem og erlendar efnisveitur hafi haft umtalsverð áhrif á rekstur íslenskra fyrirtækja á sjónvarpsmarkaði. Þau hafi þurft að skerpa á sínum áherslum og jafnvel endurskoða reksturinn í heild sinni. Rekstur á sjónvarpsmarkaði sé næmur fyrir breytingum, huga þurfi að mörgum þáttum eins og samningamálum, breyttri neytendahegðun og tækniþróun en þessir þættir spili allir stór hlutverk á sjónvarpsmarkaði. Niðurstöðurnar gefa þó til kynna að íslensk fyrirtæki á sjónvarpsmarkaði séu samkeppnishæf gagnvart erlendu efnisveitunum. Þau muni geta sinnt hlutverki sem ekki er séð fram á að erlendar efnisveitur muni koma til með að sinna í náinni framtíð. Lykilorð: Auglýsingar, efnisveitur, línulegt áhorf, sjónvarpsmarkaður, tækniþróun.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Axel Ingi Kristinsson 1994-
  • Kristófer Róbertsson 1994-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/28184
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/28184

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Axel Ingi Kristinsson 1994-; Kristófer Róbertsson 1994-. Framtíð sjónvarps á Íslandi : áhrif erlendra efnisveita og tækniþróunar á íslenskan sjónvarpsmarkað. 2017. http://hdl.handle.net/1946/28184